lánshæfiseinkunn Moody's.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra kærlega fyrir greinargóð svör. Ég tel að það hafi komið fram, sem er kjarni málsins, að hvergi í skýrslum Moody's er hvatt til þess að íslensku bankarnir flytji höfuðstöðvar sínar frá Íslandi og ekki er heldur falinn í henni áfellisdómur yfir notkun íslensku krónunnar sem gjaldmiðli fyrir þessa banka. Sú stefna stjórnvalda liggur hins vegar fyrir að auðvelda fyrirtækjum almennt, bönkum og öðrum, að gera upp reikninga sína í starfrækslumynt, þeirri mynt sem meiri hluti starfsemi þeirra er í, og hefur það mikið að segja til að auka sveigjanleika hagkerfisins.
Ég vil einnig beina þeirri spurningu til hæstv. forsætisráðherra hvort þetta undirstriki ekki að við þurfum að gæta mjög vel að hag ríkissjóðs, gæta þess að ríkissjóður verði áfram styrk stoð undir fjármálastarfseminni, og hvort ástæða sé til að skoða það vel hvort hægt (Forseti hringir.) sé að grípa til einhverra þeirra aðgerða sem auðveldi bæði Seðlabankanum og ríkinu að standa við þær skuldbindingar sem af slíkri starfsemi hljótast.