135. löggjafarþing — 54. fundur,  29. jan. 2008.

skipun ferðamálastjóra.

[13:46]
Hlusta

iðnaðarráðherra (Össur Skarphéðinsson) (Sf):

Herra forseti. Það er hárrétt hjá hv. þingmanni að þessi ríkisstjórn vill flytja störf út á land. Ég hef sagt það mörgum sinnum í þessum sal að ég telji vart verjanlegt hve stór hluti nýrra starfa sem verða til fellur til á Stór-Reykjavíkursvæðinu.

Hefði hv. þingmaður gefið sér tíma þegar hann kom frá útlöndum um helgina til þess að lesa fjölmiðla og starfsauglýsingar hefði hann m.a. séð stefnunni stað í starfsauglýsingu um síðustu helgi þar sem staða forstjóra ríkisstofnunar var auglýst og tekið sérstaklega fram að það væri gert án skilyrða um búsetu eða staðsetningu. Hins vegar er sagt að búsetan þurfi að gagnast viðkomandi stofnun.

Að því er þetta einstaka tilvik varðar þá get ég verið alveg fullkomlega ærlegur. Ég frétti fyrst af þessu svari sem hv. þingmaður segir að hafi komið frá ráðuneytinu þegar ég fékk ályktun milli jóla og nýárs, að mig minnir, frá Eyþingi, eða einhvers konar skilaboð frá þeim um það. Þetta tiltekna atriði var ekki frá mér komið og hafði ekki áhrif á mína niðurstöðu. Ég get sagt það hreint út að ég tel að það hefði komið til greina að þessari stöðu væri gegnt frá starfsstöð á Akureyri. En það voru aðrir þættir sem réðu því hver niðurstaðan síðan varð, eins og hv. þingmaður sagði. Henni var náð með svo miklum tilþrifum.

Þetta réði því ekki. Mér þykir miður að þetta gerðist og það hefur áður komið fram hjá mér opinberlega. Þetta var ekki stefna ráðuneytisins og er ekki stefna ráðuneytisins.