skipun ferðamálastjóra.
Herra forseti. Þetta var undarlegt svar. Er það þannig að ráðuneytin starfi stjórnlaust og sjálfstætt og þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar og ráðherrarnir frétti af því eftir á þegar hlutirnir eru afgreiddir með þessum hætti? Það stendur í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar undir millifyrirsögninni Landið verði eitt búsetu- og atvinnusvæði:
„Skilgreind verði þau störf á vegum ríkisins sem hægt er að vinna án tillits til staðsetningar og þannig stuðlað að fjölgun starfa á landsbyggðinni.“
Hér var kjörið tækifæri til að gera nákvæmlega þetta. Ferðamálastofa er með öfluga starfsstöð á Akureyri. Prýðilega til þess fallna að þar sitji ferðamálastjóri. 60% umsvifa í ferðaþjónustunni, mælt í gistinóttum, eru á landsbyggðinni eða utan höfuðborgarsvæðisins. Þetta þarf hæstv. ferðamálaráðherra að vita.
Hæstv. ferðamálaráðherra ber auðvitað alla ábyrgð á því sem gert er í hans ráðuneyti. Það er allt á hans ábyrgð, jafnvel þótt reynt sé að fara á bak við að starfsmenn hafi gert þetta (Forseti hringir.) án vitundar eða með samþykki ráðherra.
Þá er nærtækt að spyrja: Vill ekki ráðherra taka málið upp úr því þetta var (Forseti hringir.) gert á skjön við vilja hans og stefnu ríkisstjórnarinnar?