135. löggjafarþing — 54. fundur,  29. jan. 2008.

starfsemi íslensku bankanna.

[13:56]
Hlusta

viðskiptaráðherra (Björgvin G. Sigurðsson) (Sf):

Virðulegi forseti. Okkar hlutverk í framhaldi af matinu frá Moody's er að fara yfir hvernig best sé að standa að þessum málum til framtíðar. Einu takmarkanirnar í stöðunni eða fyrir frekari vexti bankanna sem Moody's bendir á eru smæð myntsvæðis okkar. Þá stöndum við frammi fyrir því að vinna úr núverandi ástandi með krónuna sem er fámennt og lítið myntsvæði, þ.e. að grípa til aðgerða eins og ég nefndi áðan, formlegt samstarf í peningamálum, aukinn varasjóður o.s.frv.

Eitt af því sem hefur verið gert nú þegar, sem gengið var frá í nóvember var að ég skipaði nefnd til að fara yfir lögin um skráningu hlutafjár í erlendri mynt og skráningu hlutabréfa í erlendri mynt. Henni veitir forstöðu Jón Sigurðsson, fyrrverandi bankastjóri og ráðherra, sem nú er einnig formaður stjórnar Fjármálaeftirlitsins. Þannig að það er ýmislegt í deiglunni. Það er margt verið að skoða og út frá (Forseti hringir.) þessari skýrslu Moody's munum við vinna þannig að bakhjarlinn, íslenska ríkið standi enn betur gagnvart bönkum sínum en nokkurn tímann áður.