Reykjavíkurflugvöllur.
Hæstv. forseti. Hv. þingmaður hefur miklu meiri innri þekkingu en ég á því hvort Framsóknarflokkurinn sé bóla og hvort stefnumið hans séu bólur. Hann er sjálfur orðinn bólusettur fyrir Framsóknarflokknum og það er vel. Hv. þingmaður er alltaf að þroskast. Ég get verið honum sammála um margt og samferða um margt. Ég er t.d. mikill áhugamaður um góða flugvelli á landsbyggðinni og af því að hv. þingmaður situr við hliðina á hv. þm. Árna Johnsen þá minnist ég þess að sögulegustu viðskipti mín og hv. þm. Árna Johnsens spunnust einmitt í þessum þingsal út af deilum um flugvöll á Þingeyri. Ég hef engu breytt í afstöðunni til hans, ég tel að það eigi að styrkja hann og marga flugvelli á landsbyggðinni sem ég tel skipta miklu máli að styrkja. Ég gæti nefnt t.d. að ég tel að innan tíðar þurfi menn að huga að því að byggja upp Aðaldælaflugvöll á ný. Svona gæti ég lengi talið. Það sem skiptir máli er að ég og hv. þingmaður erum báðir talsmenn landsbyggðarinnar (Forseti hringir.) og við viljum báðir að flugvöllur sé í Reykjavíkur en það er e.t.v. svolítill munur á því hvar í Reykjavík við viljum hafa hann.