uppsagnir í fiskvinnslu og atvinnuöryggi í sjávarbyggðum.
Hæstv. forseti. Sjávarútvegsráðherra kemur aldrei svo í ræðustól núorðið eða tekur til máls þar sem vanda landsbyggðarinnar ber á góma að því er varðar niðurskurð á aflaheimildum í þorski, öðruvísi en að byrja ræðu sína á því að segja að ástandið sé grafalvarlegt.
Svei mér þá, hæstv. forseti, ég held að hæstv. ráðherra sé ekki orðið sjálfrátt. Hann vissi nákvæmlega í hvað stefndi þegar farið var í að skera svona hastarlega niður þorskaflann. Hann veit líka að þorskstofninn mun ekki hrynja þótt bætt verði við þorskaflann til að laga stöðuna. Það er í raun og veru eina aðgerðin sem getur bætt ástandið í byggðunum eins og það hefur verið að þróast. Hver ber ábyrgð? Það er auðvitað hæstv. sjávarútvegsráðherra sem tekur þessa ákvörðun.
Síðan vitnar sjávarútvegsráðherra til þess í röksemdum sínum að áður hafi fólki verið sagt upp í sjávarútvegi. Auðvitað hefur það verið gert en það breytir ekki þeirri ákvörðun sem tekin var um að fara svona hastarlega í niðurskurð í þorskaflanum. Það gat ekki annað en bitnað hastarlega á byggðunum. Þetta er aðför að fólkinu á landsbyggðinni og sjávarútvegsbyggðunum. Hæstv. sjávarútvegsráðherra væri nær að endurskoða afstöðu sína og átta sig á að það sem verið er að reyna að gera í mótvægisaðgerðum mun ekki bæta ástandið sem fram undan er.
Hvernig heldur hæstv. sjávarútvegsráðherra að ástandið verði í lok aprílmánaðar? Hvernig ætlar hann að lýsa því þá? Ætlar hann áfram að segja að ástandið sé grafalvarlegt? Eru það einu viðbrögðin sem eiga að koma hér fram?