135. löggjafarþing — 54. fundur,  29. jan. 2008.

uppsagnir í fiskvinnslu og atvinnuöryggi í sjávarbyggðum.

[14:37]
Hlusta

Magnús Stefánsson (F):

Hæstv. forseti. Afleiðingar kvótaskerðingar í þorski hafa komið fram að hluta til. Mörg hundruð manns í fiskvinnslu og fleiri störfum hefur verið sagt upp frá 1. september. Ríkisstjórnin skapaði væntingar og kynnti svonefndar mótvægisaðgerðir sl. haust en þær hafa reynst alls ófullnægjandi. Segja má að fjallið hafi tekið jóðsótt og fæðst hafi lítil mús. Byggðirnar kalla eftir markvissari aðkomu ríkisins og þar var ekkert samráð haft við nokkurn mann en sumir ráðherrar sögðu að hér væri á ferðinni mestu aðgerðir sögunnar. Þvílík öfugmæli. (Gripið fram í.)

Sjávarútvegsfyrirtækin, sem eru handhafar veiðiréttarins, verða að sýna samfélagslega ábyrgð hvert á sínum stað. Aðilar í fyrirtækjunum verða að eiga góð samskipti við viðkomandi sveitarfélög, við starfsfólk sitt og samtök þeirra til að leita leiða til þess að vinna úr þeim vanda sem uppi er. Það er ótækt að einstök fyrirtæki virði samfélagið ekki viðlits þegar ákvarðanir eru teknar um aðgerðir sem bitna á atvinnu fólks og hagsmunum sveitarfélaganna eins og dæmi eru um, nú síðast hjá HB Granda. Slík vinnubrögð eru beinlínis til þess fallin að veikja stöðu fiskveiðistjórnarkerfisins.

Því miður er útlitið mjög alvarlegt víða um landið. Atvinnuöryggi í sjávarbyggðum er ógnað og slíkar aðstæður kalla á samstillt átak allra til að draga sem mest úr áföllum og þar er ríkisvaldið ekki undanþegið. Ljóst er að ríkisstjórnin verður að bæta ráð sitt í þessum efnum og leggja sig fram um að eiga sem mest samráð við hagsmunaaðila til þess að leita leiða til að draga úr áföllum eins og kostur er. Á það hefur skort og það er ekki til vegsauka fyrir ríkisstjórnina og einstaka ráðherra hennar við þær aðstæður sem nú ríkja.

Virðulegur forseti. Mér finnst að við séum hér að ræða harmleik sem er af mannavöldum, þ.e. af völdum ríkisstjórnarinnar.