uppsagnir í fiskvinnslu og atvinnuöryggi í sjávarbyggðum.
Virðulegi forseti. Þegar fyrir lá í september sl. hver niðurskurðurinn í þorskveiðum yrði, sagði formaður Samtaka fiskvinnslustöðva, Arnar Sigurmundsson, að hann teldi að störfum í fiskvinnslu mundi fækka um 500–600 og að störfum mundi fækka í sjávarútvegi samtals um eitt þúsund. Hann hefur reynst sannspár um þetta efni og það hafa engir aðrir betri spámenn komið fram um þetta en hann. Hann sagði líka þá að menn skyldu gera sér grein fyrir því að þegar kvótinn yrði aukinn að nýju yrðu ekki til ný störf, þetta væri varanlegur niðurskurður á eitt þúsund störfum. Hann mun reynast sannspár í þeim efnum líka eins og í hinu fyrra.
Mótvægisaðgerðir eru út af fyrir sig góðar aðgerðir og ég hef alltaf stutt þær og talað fyrir þeim. En menn mega ekki gleyma því að þær eru of litlar og koma of seint. Þúsund störf tapast strax og það sem kemur í staðinn eru örfá störf og þau koma löngu seinna. Halda menn að hægt sé að skapa þúsund störf með því að setja 160 milljónir til ferðaþjónustuverkefna eða 200 milljónir til atvinnuþróunar og nýsköpunar? Halda menn það, þegar hvert starf í álverinu á Austurlandi kostar 500 milljónir, hálfan milljarð kr.? Til þess að mótvægisaðgerðir hafi eitthvert gildi þurfa koma til 10 milljarðar eða svo á nokkrum árum. Leggja þarf talsvert fjármagn til verkefna til þess að ná einhverjum árangri. Þessir smápeningar eru aðeins til þess að villa um fyrir fólki, verið er að blekkja fólk með sýndartillögum. Engin alvara er hjá hæstv. ríkisstjórn til þess að skapa ný störf fyrir þessi þúsund. Það á að hrekja fólkið hingað suður í tómu íbúðirnar sem engir kaupendur eru að og bankarnir sitja uppi með, virðulegi forseti.