efling íslenska geitfjárstofnsins.
Frú forseti. Ég flyt þingsályktunartillögu sem flokksbróðir minn, hv. varaþingmaður Jón Björn Hákonarson, vann einkanlega að í vetur og þann tíma sem hann sat með okkur á þinginu í haust en auk okkar tveggja eru meðflutningsmenn hv. þm. Birkir Jón Jónsson, Atli Gíslason, Jón Gunnarsson, Grétar Mar Jónsson, Karl V. Matthíasson og Einar Már Sigurðarson.
Þetta mál snýr að því að við leggjum til að hæstv. landbúnaðarráðherra beiti sér fyrir eflingu íslenska geitfjárstofnsins. Þó að hér sé ekki mál sem lætur mikið yfir sér og mörgum þyki kannski ekki miklu varða við fyrstu sýn þá er það svo að hér eru gríðarleg verðmæti í húfi, menningarsöguleg og náttúrufræðileg verðmæti því að íslenski geitfjárstofninn er enn einu sinni á því stigi að óvíst er um framtíð hans. Það má segja að í sögu geitarinnar hafi þetta hent sig tvisvar sinnum áður svo vitað sé. Við vitum að geitfjárstofninn hefur tvívegis farið niður undir 100 dýr en nú eru taldar í landinu vera um 400 geitur og það er ýmislegt sem ógnar stofninum, einkanlega þær aðgerðir sem ráðist er í vegna riðuveikivarna en það hefur verið ófrávíkjanleg krafa þeirra yfirvalda sem að þeim aðgerðum standa að geitur séu þá skornar á því svæði þar sem útrýma ber riðu, ásamt því að skera sauðfé.
Miðað við þær aðstæður sem nú eru og þá þekkingu sem nú er þá er það eðlileg krafa en tilfellið er að það er ekki vitað hvort riða hefur áhrif á geitfjárstofninn eða hvort erfðamengi geitfjárstofnsins sé algerlega frítt við það að geta borið í sér riðu. Það eru ákveðin rök sem benda til þess að það sé auðvelt að rannsaka það og komast að óyggjandi niðurstöðu þar um og þá væri myndin töluvert breytt ef af geitfjárstofnum í landinu stafaði ekki þessi ógn og þess vegna er það eitt af því sem við leggjum til að verði gert og landbúnaðaráðherra beiti sér fyrir, þ.e. að hafnar verði rannsóknir á erfðamengi geitfjárstofnsins og það kortlagt með tilliti til riðuaðgerða.
Annað sem er kannski stærsta málið og lýtur beint að fjárhagslegum aðgerðum ríkissjóðs er það að ríkið verji fé beinlínis til að styrkja þá sem halda geitur. Það má auðvitað spyrja að því af hverju ríkissjóður eigi að leggja fé með geitunum en það er einfaldlega þannig að þetta hefur ekki verið arðbær búskapargrein fyrir neinn á síðari árum. Örfáir einstaklingar hafa að vísu reynt fyrir sér með ræktun á svolitlum stofni nú uppi í Borgarfirði og haft af því lítils háttar tekjur en fyrst og fremst hefur þetta verið áhugastarf. Það er auðvitað ekki skylda neins einstaklings að halda þessu áhugastarfi áfram og margir hafa gefist upp á geitarækt eftir fáein ár því að þetta er eins og allt búfjárhald mikil vinna og ekki við því að búast að fólk geri slíkt án þess að hafa nokkuð í aðra hönd. Þess vegna er það í rauninni skylda okkar sem samfélags og kemur heim og saman við samþykktir okkar á alþjóðlegum vettvangi um varðveislu erfðaefnis að gera þær ráðstafanir sem duga til að geitfjárstofninn viðhaldist í landinu.
Í dag eru greiddar 5 þúsund kr. með hverri skýrslufærðri geit. Þessar greiðslur hafa verið við lýði nú í nokkra áratugi og hækkað lítillega. Það kann vel að vera að þær hafi hækkað eðlilega miðað við verðlag. Ég man að fyrst þegar ég talaði um þessa geitastyrki þá voru þeir umtalsvert lægri en síðan er komið á þriðja áratug. En það er engu að síður ljóst að þessi styrkur er of lágur til að geitfjárstofninn sé nægilega stór. Það er alveg tvímælalaust að þau tæplega 400 dýr sem nú eru í landinu eru ekki fullnægjandi til þess að við getum sagt að staða stofnsins til framtíðar sé örugg. Þar kemur til m.a. hvað erfðamengið er lítið og skyldleikaræktin verður mikil við þessar aðstæður og síðan sú ógn sem ég nefndi áðan varðandi sauðfjárveikivarnirnar. Þess vegna er ekki um annað að ræða en ríkissjóður þarf, til að mæta skuldbindingum sínum með Ríó-samþykktinni frá 1992 og til að mæta þeirri eðlilegu kröfu að varðveita þennan stofn, svo það fari ekki fyrir honum eins og fór fyrir geirfuglinum, að hann hverfi algerlega af yfirborði jarðar, að hækka þennan styrk.
Mig langar aðeins í þessu efni að koma að sögu geitarinnar að því marki sem hún er kunn. Það er talið að þessi stofn hafi verið í landinu allt frá landnámsöld og komi þá líklega frá Noregi. Það er ekki vitað um neinn aðflutning geita frá því land byggðist. Aftur á móti hafa nokkrar íslenskar geitur verið fluttar til annarra landa til skamms tíma a.m.k. og ef til vill enn hefur verið til lítill stofn af þessum geitum í Skotlandi en mun minni en hér heima.
Geitur þessar hafa töluvert mikla sérstöðu meðal geita í heiminum að því leyti að þær eru bæði smærri og kannski um sumt harðgerðari enda lifað við aðrar aðstæður en geitur í heitari löndum. Þær hafa líka frábæra ullareiginleika sem hafa orðið til þess að það hefur verið áhugi á stofninum erlendis eins og útflutningurinn til Skotlands sýnir. Íslenska geitin er með svokallaða kasmírull þar sem ull hennar er ekki bara úr togi eins og algengt er með geitur heldur úr þeli og togi. Fínleiki þessarar vöru er mikill og það er kannski önnur ástæða fyrir þá sem vilja sjá það að ríkissjóður og skattgreiðendur, þjóðin sem hefur verið bent á í þessum þingsal í dag að sé eigandi ríkissjóðs, fái eitthvað fyrir sinn snúð með hækkandi framlögum til geitfjárræktar. Þessi skepna sem var áður og fyrr kölluð kýr fátæka mannsins og var leið fátækra búsetumanna til að hafa mjólk ofan í börn sín og naut engrar virðingar á við íslensku kúna, framtíðarhlutverk hennar verður kannski akkúrat á hinum enda mannlífsins, þ.e. að framleiða fyrir okkur fágætar, torfengnar og dýrar lúxusvörur því að afurðir geitarinnar eru mjög merkilegar. Bæði er mjólk geitarinnar sérstæð fyrir það að hún hentar þeim sem hafa óþol gagnvart kúamjólk. Hún er miklu auðmeltari, hún meltist á margfalt skemmri tíma en kúamjólkin og hún hentar því ýmsum hópum sem þurfa á þessu að halda, litlum markaðshópum og þannig hefur hún verið nýtt um nokkurra áratuga skeið þó að sú nýting hafi verið nokkuð óreglubundin. Það hafa ýmsir reynt fyrir sér í þessu, nú síðast bóndi í Borgarfirði með miklum myndarskap en það hefur vantað kannski hinn formlega fagmann fyrir þetta og það sem hefur algerlega vantað er að stækka stofninn verulega þannig að hægt sé að hefja t.d. ostaframleiðslu sem ekki er talið fært að fara út í með svo fáar skepnur.
Síðan komum við að ullareiginleikanum sem eru mjög merkilegir líka og bjóða upp á margs konar merkilegt handverk og merkilega framleiðslu og í þriðja lagi býður geitin okkur upp á stökurnar eða geitaskinnið sem er einstakt til bókbands. Allt þetta sem hefur verið nefnt eru vörur eða landbúnaðarframleiðsla sem við sjáum vafalaust aldrei í stórfelldri fjöldaframleiðslu eða í þeim framleiðslugeira að það verði reynt að ná sem lægstu verði á öllu heldur akkúrat á hinum enda geirans, þ.e. í lúxusframleiðslunni og framleiðslu fyrir sértæka markaði en mjög líklega tækifæri í framtíðinni þar sem hlutverk okkar Íslendinga, m.a. í matvælaframleiðslu sem var verið að ræða áðan, verður miklu frekar að vinna að hágæðaframleiðslu en fjöldaframleiðslu.
Að öllu þessu sögðu vil ég ítreka ósk okkar flutningsmanna um að landbúnaðarráðherra beiti sér fyrir eflingu geitfjárstofnsins og það sem við leggjum sérstaklega til er í fyrsta lagi að bændur sem vilja vinna afurðir til sölu fái tímabundinn styrk og aðstoð eftir nánara fyrirkomulagi til að koma sér af stað, að geitastyrkirnir á hverja geit verði hækkaðir, að hafnar verði rannsóknir á erfðamengi geitfjárstofnsins þannig að það megi komast til botns í því hvort nauðsynlegt sé að skera geitina þar sem riða kemur upp í sauðfé en riða hefur aldrei komið upp í geitum svo vitað sé. Loks að veitt verði heimild til að flytja sæði milli geitfjárhjarða yfir sauðfjárræktargirðingar.
Ég ætla ekki að hafa um þetta fleiri orð en vænti þess að landbúnaðarráðherra og ríkisstjórnin veiti þessu máli brautargengi.