135. löggjafarþing — 54. fundur,  29. jan. 2008.

stjórn fiskveiða.

147. mál
[16:08]
Hlusta

Atli Gíslason (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég verð að halda því til haga að í sjávarútvegsstefnu flokksins, sem er ítarleg og ég beini hv. þingmanni til þeirra heimildaskjala, er mælt fyrir um 20 ára fyrningaleið þar sem heimildir gangi til baka. Þeim yrði ráðstafað á nýjan leik.

Það er algjörlega ljóst að mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna hefur sagt að sala og leiga á kvóta standist ekki jafnræðisregluna og að það standist ekki sanngirniskröfur. Á því verður að taka.

Það er líka algjörlega ljóst, hv. þingmaður, að á þessu kerfi og þeim vandamálum sem blasa við er ekki patentlausn. Við leggjum fram hugmyndafræði og stefnu sem hægt er að byggja þessa heildarendurskoðun á og við ætlum okkur tvö og hálft ár í það.