stjórn fiskveiða.
Virðulegi forseti. Við ræðum um lagafrumvarp til breytinga á lögum um stjórn fiskveiða. Í grundvallaratriðum er í frumvarpinu lagt til að núverandi kerfi verði lagt niður og ný lög, ný aðferðafræði taki gildi árið 2010.
Í greinargerð með frumvarpinu er núverandi kerfi fundið flest til foráttu án þess þó að leggja til, nema í mjög almennum orðum, hvaða leið skuli fara. Hér er því slegið fram að tryggja þurfi byggð í landinu og auka rannsóknir og koma á sjálfbærri nýtingu á náttúruauðlindinni. Við þurfum að stunda vistvænar veiðar. Það er gjarnan fjallað um þetta í umræðunni um nýtingu á náttúruauðlindum, auðlindum sjávar, sem er jafnframt markmiðið með öllum fiskveiðistjórnkerfum.
Við skulum minnast þess að núverandi lög voru sett af brýnni nauðsyn til þess að tryggja afkomu og viðgang undirstöðuatvinnugreinar þjóðarinnar, þeirrar greinar sem klárlega hefur staðið undir þeim miklu framförum sem orðið hafa á seinni árum. Það er eins og sumir haldi það, maður heyrir það stundum í umræðunni, að sú öfluga fjármálastarfsemi sem hér hefur rutt sér rúms á síðustu árum, svo ánægjuleg sem sú þróun hefur verið, hafi sprottið af sjálfu sér. Auðvitað sprettur hún af þeim grunni sem lagður var af undirstöðuatvinnugreinum þjóðarinnar.
Ef við rifjum aðeins upp stöðuna í íslenskum sjávarútvegi þegar kvótakerfinu var komið á þá var staðan í greininni almennt mjög erfið. Mörg fyrirtæki voru í rekstrarerfiðleikum og víða óvissa um afkomu fyrirtækja. Við vorum með allt of stóran fiskveiðiflota til að geta með skynsamlegum hætti nýtt náttúruauðlindir okkar. Það má segja að fiskveiðistjórnarkerfið hafi skapað atvinnugreininni forsendur til að skipuleggja veiðarnar út frá veiðiheimildum og þannig hafi náðst hagkvæmni í sókn flotans og verið komið í veg fyrir offjárfestingu í skipum og búnaði. Við bjuggum við ofveiði úr mörgum af helstu nytjastofnum okkar og stefndi í mikið óefni í þeim málum. Ljóst var að stofnarnir þyldu alls ekki þær veiðar sem þá voru stundaðar. Við bjuggum við ótrygga stöðu krónunnar, gengi krónunnar var hreinlega notað til að mæta rekstri fyrirtækjanna, til að hjálpa þeim í gegnum þá erfiðleika sem að steðjuðu með tilheyrandi gengisfellingum, eins og við munum eftir. Við bjuggum við opinbera eigu að hluta til í sjávarútvegi og má þar nefna bæjarútgerðirnar sem síðan hafa allar, held ég, verið lagðar niður og seldar.
Við getum svo skoðað hver breytingin er frá þessum tíma og til dagsins í dag. Almennt standa íslenskar útgerðir og útgerðarfyrirtæki traustum fótum. Á undanförnum árum hafa þau skilað miklum tekjum til íslenska þjóðarbúsins. Íslenskur sjávarútvegur er sterkur og nýtur ekki almennra styrkja, sem er nánast einsdæmi miðað við þau lönd sem við berum okkur saman við. Fiskveiðistjórnarkerfið hefur veitt fyrirtækjum í sjávarútvegi gott svigrúm til að laga rekstur sinn að sveiflum, bæði í náttúrunni og rekstrarumhverfinu.
Hv. þm. Atli Gíslason hélt því áðan fram að þessi fyrirtæki stæðu almennt veikum fótum, þau væru ákaflega skuldsett og þannig, eins og mátti skilja af orðum hans, á barmi gjaldþrots. Hver væri staðan ef sjávarútvegsfyrirtæki okkar væru almennt veik, ef skuldsetning væri umfram það sem eðlilegt má teljast miðað við þá fjárfestingu sem hefur verið í greininni á undanförnum árum? Þá væri traust lánastofnana ekki fyrir hendi og aðgangur að fjármagni ekki fyrir hendi. Hvernig er skuldastaða íslensks sjávarútvegs miðað við skuldastöðu annarra atvinnugreina á Íslandi? Er hún eitthvað verri? Ég held ekki.
Íslenskur sjávarútvegur hefur notið trausts lánastofnana og grundvöllurinn að aðgangi að fjármagni til að standa undir endurbótum og framförum í greininni er aflahlutdeildin. Hún er forsenda traustsins. Þess vegna hefur íslenskur sjávarútvegur og íslensk útgerðarfyrirtæki getað byggst upp til framtíðar. Þrátt fyrir erfið rekstrarskilyrði vegna hás gengis krónunnar og hækkandi olíuverðs hefur fyrirtækjum í greininni almennt tekist vel í rekstri sínum. Skuldasöfnun í greininni er ekki óeðlileg miðað við þau verkefni sem hún hefur fjárfest í, þvert á móti hefur komið fram að skuldir greinarinnar hafi ekki vaxið í sama mæli og skuldir heimila og fyrirtækja á undanförnum árum, eins og ég kom hér inn á áðan. Fjárfestingar og hagræðing í greininni hefur skilað sér í byltingu í aukinni nýtingu og verðmætasköpun. Íslenskur sjávarútvegur fær í dag hæsta verð fyrir sínar afurðir á mörkuðum erlendis og það er engin tilviljun. Það er vegna þess að íslenskar sjávarafurðir eru þekktar fyrir gæði og vandaða meðferð. Greinin skipar sér með þeim hætti í fremstu röð á alþjóðavísu.
Það er mikil alhæfing og einföldun að tala um að byggðaþróun og samdráttur í strandbyggðum úti um landið sé eingöngu að kenna sjávarútvegsstefnu stjórnvalda. Við vitum það og þeir vita það vel sem um þessi mál ræða og hafa kynnt sér þau. Hv. þingmenn sem hér hafa fjallað um þessi mál vita vel að allt aðrir hlutir ráða þessu, þ.e. að aukin tæknibylting, aukin tækniþróun í veiðum og vinnslu og mjög minnkandi mannaflaþörf er fyrst og fremst orsök þessa.
Við í sjávarútvegsnefnd þingsins vorum á ferð um Norður- og Austurland í haust. Okkur var á Neskaupstað glögglega gerð grein fyrir því hvað mannaflaþörfin hefur minnkað í íslenskum sjávarútvegi þegar tekin voru til samanburðar veiðar og vinnsla, hvernig staðið var að því fyrir 20 árum miðað við það sem er í dag og hve miklu færra fólk þarf til að vinna meira magn og verðmætari afurðir en var þá.
Ég held að við getum öll verið sammála um að við hefðum gjarnan viljað sjá betri árangur af fiskveiðistjórnarkerfinu en það er langt frá því að hægt sé að tala um gjaldþrot í því kerfi sem við höfum búið við. Það er ekki málefnalegur málflutningur. Við hefðum eflaust viljað sjá helstu nytjastofna sterkari í dag en þeir eru. En það er spurning um það hvort við erum að hengja bakara fyrir smið þegar við ætlum að kenna fiskveiðistjórnarkerfinu um það eða þeirri stefnu sem fylgt hefur verið í veiðum okkar á undanförnum árum og áratugum. Það er umdeilanlegt af hverju stofnarnir eru ekki sterkari en raun ber vitni í dag. Það var mikið hugrekki í ákvörðun sjávarútvegsráðherra og stjórnvalda í haust að fara í fyrsta skipti eftir þeim bestu ráðum sem við höfum frá okkar bestu sérfræðingum. Við höfum veitt heilmikið umfram ráðgjöf. Ég held að frá því að kvótakerfið kom til skjalanna sé það í kringum 1,5 millj. tonn af þorski. Við höfum veitt of mikið af loðnu og um það eru menn sammála í dag og við vitum að t.d. ört vaxandi hvalastofnar við Ísland hafa örugglega gríðarleg áhrif á helstu nytjastofna okkar.
Við sjáum reyndar ágætisástand á sumum stofnum. Ég vil t.d. nefna ýsu sem við höfum ekki veitt meira af síðan 1965 og af ufsa höfum við ekki veitt meira síðan 1992 og 1993 og þá hefur náttúrlega nýtt síldarævintýri komið til á síðustu árum.
Veiðistjórnarkerfið er stöðugt í skoðun og þróun. Við erum klárlega með tiltölulega veika vísindagrein og ég get tekið undir það með flutningsmönnum þessa frumvarps að við eigum að auka rannsóknir. Við erum að auka rannsóknir. Ég get tekið undir það að við eigum að gera það enn frekar vegna þess að við þurfum miklu meiri þekkingu til að byggja ákvarðanir okkar á í framtíðinni. En það er ekki eins og við höfum ekki verið að gera neitt og þessi lög, sem eru að megninu til síðan 1990, eru alltaf í endurskoðun. Á þeim hafa verið gerðar hátt í 40 breytingar á þessum tíma. Það sýnir að stjórnvöld eru opin fyrir breytingum. (Gripið fram í.) Stjórnvöld eru opin fyrir breytingum og stjórnvöld taka ákvarðanir um breytingar sem byggjast á þeim niðurstöðum sem liggja fyrir á hverjum tíma.
Það er ekki eins og Íslendingar séu einir um þetta vandamál. Það er ekki þannig. Nágrannaþjóðir okkar og þær þjóðir sem við berum okkur helst saman við eru í miklu verri málum þegar kemur að nýtingu sjávarauðlinda. Menn hafa því horft til okkar og þess kerfis sem við notum.
Virðulegi forseti. Það er eðlilegt að svo mikilvægur þáttur í okkar samfélagi sem nýting náttúruauðlinda á borð við fiskistofna í hafinu er sé reglulega til umfjöllunar á hinu háa Alþingi. Við búum við kerfi sem hefur marga kosti og hefur breytt undirstöðuatvinnugrein þjóðarinnar í enn öflugri grein sem skilar þjóðarbúinu miklu meira en fyrr. Allar þær breytingar sem við kunnum að vilja gera á þessu kerfi þarf að ígrunda vel og þau skilaboð sem við sendum frá Alþingi mega ekki verða til að skapa frekari erfiðleika hjá þeim sem í greininni starfa og fjárfest hafa í henni fyrir háar upphæðir á undaförnum árum. Þeir sem eru við þær erfiðu aðstæður sem við búum við í sjávarútvegi í dag, að halda úti þessum rekstri, mega ekki við því að héðan komi ábyrgðarlaus skilaboð sem veikja stöðuna enn frekar.
Tillaga eins og sú sem við ræðum hér finnst mér á vissan hátt byrja á röngum enda. Hér er rætt um sjálfbæra nýtingu, um áherslu á byggðasjónarmið og eflingu rannsókna. Við getum verið sammála um þetta, en við skulum fyrst heyra frá hv. þingmönnum tillögur um leiðir áður en við ákveðum að leggja núverandi leið niður á ákveðnum tíma. Það þýðir ekki í þessu mikilvæga máli að við séum vegalaus.