135. löggjafarþing — 54. fundur,  29. jan. 2008.

stjórn fiskveiða.

147. mál
[18:06]
Hlusta

Grétar Mar Jónsson (Fl) (andsvar):

Herra forseti. Það sem mér finnst vanta í þessa umræðu er að menn segi það sem þeir meina. Menn fara eiginlega eins og kettir í kringum heitan grautarpott, þora ekki að segja það sem þá langar að segja en gefa það aðeins í skyn.

Við stöndum frammi fyrir því að með togveiðarfærum veiðum við tegundir eins og humar, rækju, karfa, grálúðu og fleira. Við náum þessum tegundum ekki að nokkru marki nema með togveiðarfærum. Þetta er auðvitað það sem menn þurfa að þora að segja. Ef leggja á til að græða landið þá verðum við að þora að tala um þetta tæpitungulaust. Það finnst mér skorta á í umræðunni.

Þegar menn tala um að græða hafsbotninn þá er ljóst að það verður ekki gert með trollveiðum. Það hlýtur að liggja í augum uppi, hv. þm. Jón Bjarnason. Þess vegna þurfa menn bara að koma og segja hvað þeir vilja og leggja til. Þetta er allt þekkt. Það er þekkt hvaða áhrif botntroll hefur á botn. Það er þekkt hvaða áhrif snurvoð hefur á sandbotn, eða drullubotn eins og við segjum stundum. Þetta er allt þekkt en menn þurfa að þora að segja það ef þeir vilja banna sérstakar tegundir veiðarfæra. Þá verða menn að þora að segja það beint en ekki að dansa í kringum þetta eins og köttur í kringum heita grautarskál. Mér finnst að við þurfum bara að ræða þetta, þora að gera það.

Það er dálítið skrautlegt að tala þannig. Ekki hafið þið mótmælt mengun á frystiskipum, útblástursmengun. Ekki hafið þið lagt til að friða ákveðin svæði. Þið studduð í haust frumvarp um það, eða ykkar maður í sjávarútvegsnefnd og ég veit ekki betur en þið hafið greitt því atkvæði líka, um að loka kóralsvæðum en (Forseti hringir.) opna svæði inn fyrir tólf mílna landhelgina fyrir togara.