stjórn fiskveiða.
Herra forseti. Æðioft er fiskvinnsla tengd útgerð í samkeppni á mörkuðum og býður í sama fiskinn og fiskvinnsla án útgerðar þarf að bjóða í. Það er mjög erfitt að bjóða upp á það. Þess vegna er best að gera eins og gert er á Englandi, í Þýskalandi, Frakklandi, Danmörku og fleiri löndum, þar sem nánast allur fiskur fer á fiskmarkað. Það er samkomulag við sjómannasamtök í þessum löndum um hvernig skuli ráðstafa afla. Það er byggt á því að menn keppast við að landa fisknum á sem hæstu verði til að sjómenn hafi fullan hlut út úr því.
Í íslensku sjómannalögunum stendur að útgerðarmaður skuli ávallt tryggja sjómönnum sínum hæsta verð sem hægt er að fá. Þetta er einn af þeim grunnþáttum sem ekki hefur verið staðið við gagnvart íslenskum sjómönnum í gegnum tíðina. Það er meira að segja til apparat sem heitir Verðlagsstofa sjávarútvegsins sem verðleggur þrjár eða fjórar tegundir af fiski, eins og ég sagði áðan, þorskinn á 130–150 kr. eftir stærð og gæðum en markaðsverð er helmingi hærra, í sumum tilfellum upp í 350 kr. eins og var stundum í haust á stórum og góðum fiski.
Þetta finnst mér ekki ganga upp. Bróðurpartinum af öllum þeim afla sem hv. þingmaður talar um að fari í gáma erlendis fer á markað í flestum tilfellum, er verðlagt í gegnum fiskmarkað. Sjómenn hafa fullt kaup út úr því. En nú er komið til fyrirkomulag þar sem íslenskir fiskverkendur fá að bjóða í fisk áður en hann fer í gáma. Þá hafa menn kost á að setja lágmarksverð á fiskinn þannig að þeir vilja oftast nær frekar selja hann til útlanda en selja hann innan lands. Það eru þessir þættir sem maður skilur ekki í stefnu Vinstri grænna, þ.e. út af launum sjómanna. (Forseti hringir.) Út frá launum sjómanna hefur maður ekki skilið þetta. Þetta er vont, ykkar fyrirkomulag, gagnvart launakjörum sjómanna.