135. löggjafarþing — 54. fundur,  29. jan. 2008.

stjórn fiskveiða.

147. mál
[18:58]
Hlusta

Grétar Mar Jónsson (Fl) (andsvar):

Herra forseti. Það er kannski til of mikils mælst að ætlast til þess að þingmaður svari fyrir ríkisstjórn, en ég tel að hv. þm. Ellert B. Schram geti þó svarað fyrir sjálfan sig. Tekur hann þátt í því að snúa út úr eða reyna að hunsa álit mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna? Mér finnst það skipta máli að menn standi frammi fyrir prinsippum, ekki bara til að verja ríkisstjórnir eða verja þær falli. Ég dreg mjög í efa fullyrðingu hv. þingmanns um að það sé meiri hluti fyrir því á Alþingi Íslendinga að hunsa álit mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna. Að mínu mati eru engar líkur á að svo sé. En það er mjög alvarlegt ef menn ætla að láta það yfir sig ganga að brjóta tilmæli mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna.