135. löggjafarþing — 55. fundur,  30. jan. 2008.

störf án staðsetningar -- kostnaður við Kárahnjúkavirkjun.

[13:33]
Hlusta

Lúðvík Bergvinsson (Sf):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Bjarna Harðarsyni fyrir að taka þetta mál upp. Hér er um mjög stórt mál að ræða. Hér er um ákveðna grundvallarbreytingu, stefnumótun sem í því felst að færa störf af höfuðborgarsvæðinu út á land. Það er skilgreiningin á „störfum án staðsetningar“ þ.e. að vinna þau störf sem hægt er að vinna úti á landi, að þau séu flutt. Það er skilgreiningin. Það er alveg klárt. Það er einnig alveg klárt í huga þess sem hér stendur og hefur alltaf verið að ég tel að það starf sem hv. þingmaður vísaði til eigi að vera á Hornafirði og ég hef gengið út frá því að það verði þar. Ég hef ekki trú á öðru en hæstv. iðnaðarráðherra hafi nákvæmlega sömu skoðun á því að það starf verði unnið þar.

Nýverið skilaði starfshópur á vegum fjármála- og iðnaðarráðuneytisins af sér greinargerð um þessi mál þar sem fram kemur að nú eigi að vinna með 40 stofnanir sem heyra undir 11 ráðuneyti í þessu verkefni, þ.e. „störf án staðsetningar“ sem byggja á því að flytja störf út á land en þó vitaskuld með það fororð að sá hæfasti sé jafnan ráðinn. Opinberum störfum hefur fjölgað nánast einvörðungu á höfuðborgarsvæðinu en fækkað annars staðar, það er verið að reyna að snúa þessu við. Mín skoðun er sú og minn skilning hefur alltaf verið sá að það starf sem hv. þingmaður vísaði til verði í framtíðinni unnið í þessum sveitarfélögum og ég hef alltaf skilið það þannig að umrætt starf verði unnið á Hornafirði.