störf án staðsetningar -- kostnaður við Kárahnjúkavirkjun.
Herra forseti. Ef hv. þingmaður hefði haldið áfram að lesa í þeirri frétt sem hún las upp úr í Viðskiptablaðinu hefði hún líka komist að því að þar kemur fram að arðsemi virkjunarinnar hefur aukist töluvert mikið umfram það sem áður var sagt. Það er þó ekki efni svars míns. Hv. þingmaður spurði hvað liði gerð skýrslu um kostnað og framkvæmd Kárahnjúkavirkjunar sem beint var til mín, iðnaðarráðherra. (Gripið fram í.) Nei, það var nefnilega málið. En ég get upplýst hv. þingmann um að skýrslunni líður bara bærilega, þetta er flókin skýrsla. Hv. þingmanni var bent á það í upphafi að hún væri að beina þessari skýrslugerð til rangs ráðherra, þ.e. til iðnaðarráðherra sem fer ekki með þetta mál, það er fjármálaráðuneytið sem fer með þetta mál, svo einfalt er það nú. Það er fjármálaráðherra sem hefur „hlutabréfið“ í Landsvirkjun í sínum höndum.
Þetta var hv. þingmanni bent á en hún vildi (Gripið fram í.) miklu frekar beina þessu … (ÁI: Þetta er rangt. Skrifstofustjóri Alþingis getur staðfest að þetta er rangt.) Að minnsta kosti hafnaði skýrslubeiðnin á borði mínu eftir að ég hafði talað við hv. þingmann og talað við skrifstofu Alþingis sem var sammála mér en VG eða hv. þingmaður taldi það réttara að beina skýrslunni til mín og það er allt í lagi. Það er sjálfsagt að við svörum þessu þó að því sé beint til rangs aðila. Svo getur hv. þingmaður skýrt það út fyrir einhverjum öðrum en mér því að ég hef engan áhuga á því að vita af hverju hún vildi endilega fá skýrsluna frá mér.
Í öllu falli er þetta flókin skýrslugerð sem ekki er hægt að gera nema að fá gögn frá Landsvirkjun. Þau gögn bárust iðnaðarráðuneytinu ekki fyrr en í síðustu viku eftir töluvert harðan og þrýstingsmikinn eftirrekstur þannig að hv. þingmaður fær þessa skýrslu á sínum tíma. Ég bið hana afsökunar á töfinni, (Forseti hringir.) það er alveg hárrétt hjá henni að hún átti að vera komin. Ástæðan fyrir töfinni er einfaldlega sú að gögnin bárust ekki frá Landsvirkjun. Læt ég þar með ræðu minni lokið, herra forseti.