störf án staðsetningar -- kostnaður við Kárahnjúkavirkjun.
Herra forseti. Ég beindi spurningu minni til hæstv. forseta og átti ekki von á því að fá slíka yfirhalningu frá hæstv. iðnaðarráðherra.
Það er ljóst, og það getur skrifstofustjóri Alþingis staðfest, að mig og okkur sem að þessari beiðni stöndum skiptir engu máli hvaðan svörin koma. Það var viðbúið að ef þetta væri rangt stílað frá okkar hálfu mætti prenta þetta upp og vísa því annað. Það skiptir ekki máli hvor silkihúfan það er sem svarar. Það eru svörin sem skipta máli, það er niðurstaðan sem skiptir máli.
Það er heppilegt að með því að framkvæmdin hafi farið 70% fram úr áætlun, úr litlum 100 milljörðum í 170, þá er það vissulega heppilegt sem forvígismenn Landsvirkjunar kynntu á blaðamannafundi á dögunum að tekjurnar hafi aukist og arðsemin hafi batnað og á þetta benti ráðherrann áðan. En því miður, rétt eins og hæstv. ráðherra sagði mér að lesa betur ætti hann að gera það sjálfur, (Iðnrh.: Kurteisleg ábending.) því að í Viðskiptablaðinu draga tveir virtir hagfræðingar þetta arðsemismat í efa og segja það langt í frá að vera trúverðugt. Er það nú ekki í fyrsta skipti sem er deilt um tölur sem koma um þessa framkvæmd eða verkið í það heila þar sem himinn og haf er á milli fullyrðinga þeirra sem gerst þekkja, hvort heldur það eru jarðfræðingar eða hagfræðingar, og svo aftur hinna sem hafa verið ákveðnir í því að keyra þetta verkefni í gegn hvað sem það kostar og hversu illa sem það fer með náttúruna.
Ég bíð eftir þessari skýrslu (Forseti hringir.) eins og fleiri og það skiptir engu máli hvaðan hún á að koma, bara að svörin komi.