stjórnarskipunarlög.
Forseti. Ég vil í fyrsta lagi fagna þessu þingmáli og þeim umræðum um stjórnarskrána, stjórnarskipunarlögin eins og þetta heitir á þingmálinu, sem fram fara í tilefni af þessu. Á þeim skamma tíma sem ég hef nú dvalist á þinginu sé ég að breytingarnar á þingsköpum hafa haft jákvæð áhrif, m.a. með þeim hætti að ráðherrar eru viðstaddir umræður um mál sem koma þeim við og taka þátt í þeim. Ég tel það góða breytingu og hrósvert af ráðherranna hálfu frá því sem ég þekkti hér áður.
Ég ætla ekki að fjalla um öll þessi mál, a.m.k. ekki jafnítarlega. Ég hef — á ég að kalla það samúð með sjónarmiðum flutningsmanna um bráðabirgðalögin þó að ég hafi ekki gert upp hug minn um það hvort ganga eigi svo langt að fella greinina um þau úr gildi og varðar kannski ekki miklu. Það sem skiptir mestu máli er að ríkisstjórnin fari með þetta vald af varkárni og hagi sér í samræmi við þá tíma sem nú eru upp runnir, bæði tæknilega og í þingsköpum, að þingið situr allt árið. Það er ekki stórmál að kalla það saman og ber að gera það samkvæmt þeim anda sem er í lögunum.
Ég verð að segja það með flutningsmönnum að ég sé ekki þau stóru vandræði sem upp gætu komið við það að ríkisstjórnin hefði ekki þennan rétt, að þingið hefði hann eitt og sjálft. Vissulega þarf stundum að taka ákvarðanir fljótt og vel en þá er þess að minnast, sem Einar Benediktsson sagði, að „þegar býður þjóðarsómi, þá á Bretland eina sál“. Ef ákvarðanirnar eru svo mikilvægar og samstaðan um þær svo mikil að menn telji þær vera, þannig að ég noti nú forsætisráðherralegt orðalag, „andlag“ bráðabirgðalaga, hljóta forustumenn stjórnarandstöðunnar og þingmenn að geta sameinast um þá hluti. Ég hef enga trú á því að menn fari að setja upp einhverja andstöðu eða beita einhverjum hrossakaupum gegn slíkum hlutum. Dæmið um ríkisábyrgð vegna flugvélanna við þær aðstæður sem þá voru uppi er einmitt slíkt dæmi.
Ég skal svo ekkert segja um þau dæmi sem nefnd voru hér um bráðabirgðalög. Ég var ekki hrifinn af bráðabirgðalögum ríkisstjórnarinnar um Keflavíkurflugvöll, verð að segja það alveg eins og er. Ég hvorki skýt mér undir né undan ábyrgð með því að fjalla ekki meira um það en ég efast um að það hafi verið slíkt stórmál að ekki hefði verið hægt að fá þingheim, og þar á meðal forustumenn stjórnarandstöðunnar, til þess að fallast á tiltekna afgreiðslu innan ákveðins tíma um það án þess að blanda öðrum málum þar saman við. Ef svo var ekki gat ríkisstjórnin þó, a.m.k. pólitískt, sett ábyrgðina á stjórnarandstöðuna og á þingmennina í því efni.
Við erum að ræða hér um annað kerfi og í því kerfi gilda önnur lögmál, ekki er hægt að flytja atburði og aðstæður úr einu kerfi, því sem nú gildir, yfir í það sem við tæki hér ef vilji flutningsmanna um bráðabirgðalögin, sem ég hef talað miklu meira um en ég ætlaði, næði fram að ganga.
Ég er ósköp einfaldlega sammála því að stjórnarskrárákvæði fari í þjóðaratkvæðagreiðslu og tel að það geti gerst með þeim hætti sem orðaður var í stjórnarskrárnefndinni sem hæstv. iðnaðarráðherra minntist á, að hinn venjulegi framgangsmáti yrði sá að þjóðaratkvæðagreiðsla yrði samfara alþingiskosningum og þá væri eðlilegt, eins og ég sagði, að stjórnarskrárbreytingar sem þingið hefði samþykkt söfnuðust saman í þessa rennu. Ég tel líka koma til greina að breytingartillögur komi frá öðrum en Alþingi, þær geti komið t.d. úr undirskriftasöfnun þar sem tiltekinn hluti kjósenda hefði átt hlut að máli og færu þannig í atkvæðagreiðsluna. Stjórnarskrárgjafinn yrði þá klárlega þjóðin og tillögur til hennar um breytingar á stjórnarskrá kæmu þá frá öðrum, annars vegar frá Alþingi og hins vegar einhverjum tilteknum hluta kjósenda í landinu.
Um það að ráðherrar séu ekki þingmenn tel ég rétt að leiðrétta hæstv. iðnaðarráðherra hvað það varðar að Samfylkingin hafi ekki skoðun á þessu, vegna þess að hún hefur það. (Iðnrh.: Ég sagði það ekki.) Nei, en hæstv. iðnaðarráðherra lét að því liggja að menn væru ekki á einu máli um þetta og það kann að vera að menn séu það ekki, en hvað sem því líður var þetta eitt af stefnumálum Samfylkingarinnar í kosningunum síðasta vor og ég hygg að þetta hafi verið samþykkt á landsfundi, að vísu ekki í neinni annarri útfærslu en þeirri að segja þetta almennum orðum. Hér hrista menn höfuð en það er nú rétt hjá mér samt að þetta var gert svona.
Þessu er ég sammála og hef lengi verið. Ég tel ástæðu til þess að skilja að löggjafarvald og framkvæmdarvald betur en gert er. Síðan ég kynntist Alþingi hefur mér runnið nokkuð til rifja hvað ráðherravaldið er mikið á þinginu sjálfu, jafnvel svo að það kemur fram með mjög táknlegum hætti, kemur fram í liðsskipan hér í sal Alþingis þar sem ráðherrarnir sitja, fulltrúar valdsins, og horfa fram á þingheim, sem er svona almenningur á sínum eigin heimavelli, í staðinn fyrir, eins og sumir hafa lagt til, að ráðherrarnir sitji til hliðar við þingheim sem er hér að funda á sínum stað. Það kemur fram í því að myndir af öllum ráðherrum Íslendinga eru hafðar á sérstökum vegg en myndir af forsetum þingsins eða duglegum, virkum þingmönnum, öðrum en þeim sem hafa gegnt ráðherraembættum, eru meira háðar tilviljunum. Það kemur fram í því að ráðherrar láta bílstjóra sína sitja hér niðri í salnum, ágætis karlar flestir, og bílarnir eru hafðir framan við húsið, skyggja á þinghúsið og eru á stundum nokkuð ágengir, svo að notað sé orðfæri úr orkubransanum, (Gripið fram í.) og stundum hafðir í lausagangi hér fyrir framan meðan ráðherrar skjótast inn og út úr húsinu. Ég vil nota tækifærið og hvetja forseta til að lagfæra þetta og láta ráðherrana leggja á venjulegum bílastæðum, a.m.k. ef þeir geta ekki sýnt fram á að þeir ætli aðeins að staldra hér við í fimm eða tíu mínútur.
Þetta er hin myndræna ásýnd ráðherravaldsins á þingi og svo kemur auðvitað hin efnislega. Ég verð að segja að þrátt fyrir hól mitt um þingskapabreytingarnar hér á haustþinginu voru þær nú margar þess eðlis að þær voru annaðhvort að framfæra ráðherravaldið eða að staðfesta það. Sú ágæta breyting í sjálfu sér, sem mér sýnist hafa lífgað upp á þingið, að fjölga óundirbúnum fyrirspurnum til ráðherra setur ráðherrunum vissulega — það má segja að hún auki eftirlit þingsins með ráðherrunum. En sú breyting gerir það líka að verkum að ráðherrarnir verða meiri partur af þinghaldinu, að umsögn þeirra, svör þeirra, ákvarðanir þeirra, stefna þeirra, samþykki þeirra verður aukinn hluti af því sem fram fer í þessum sal, sem á samkvæmt stjórnarskránni, sem á samkvæmt hugsuninni um löggjafarvaldið, að vera vettvangur löggjafarstarfseminnar og hinnar pólitísku umræðu kjörinna fulltrúa almennings en ekki ráðamanna framkvæmdarvaldsins.
Ég geri mér grein fyrir því að við höfum skipulagt samfélag okkar með tilteknum hætti og ekki öðrum, t.d. ekki þeim sem hæstv. forsætisráðherra, sem mér fannst einkar hrósvert að skyldi fara hér yfir sviðið — hann rakti af víðsýni og skarpskyggni það sem viðgengst í Bandaríkjum hinna amerísku ríkja eða hvað þau eiga nú að heita, og að Vilmundur Gylfason lagði til með sínum hætti hér á árum áður að þingræðið væri sem sé afnumið. Það væri ekki þannig að þingið samþykkti eða synjaði ráðherrum seturéttar heldur væri framkvæmdarvaldið kjörið sérstaklega, forsetinn skipaði þá ráðherra eða forsætisráðherra og þingið sæti þá óháð meiri hluta á þinginu sem hann yrði að búa til í hvert sinn eins og við sjáum dæmi um í Bandaríkjunum þar sem forsetinn hefur ekki endilega meiri hluta á þinginu.
Ég hikaði þegar þessi tillaga var hér til umræðu á sínum tíma og hika enn við að ganga svona langt þó að sá vilji sé til hér í þingsalnum og reyndar á ráðherrabekkjunum því að hæstv. viðskiptaráðherra hefur oftar en einu sinni mælt með þessari skipan mála, sem er athyglisverð leið. Ég held hins vegar að það sem hér er lagt til mundi bæta þetta ástand að nokkru og þá hygg ég að það sé betri leið, a.m.k. í byrjun, að láta ráðherra segja tímabundið af sér þingmennsku þó að hin aðferðin hafi sín rök.
Athugasemdir hv. þm. Sigurðar Kára Kristjánssonar eiga hvorar tveggju rétt á sér. Þar sem við erum nú að ræða þetta í alvöru þurfa flutningsmenn að gera grein fyrir skoðunum sínum á þeim. Það er annars vegar um þann kostnaðarauka sem þetta hefði í för með sér að óbreyttri þingmannatölu, sem er rétt athugasemd og ábending, og áður í umræðu um þessi efni hefur verið bent á að e.t.v. væri rökrétt, a.m.k. hyggilegt, að fækka þá þingmönnum í leiðinni. Ef ráðherrar eru 12 og halda áfram að vera 12 væri einfalda aðferðin að fækka þingmönnum um 12, þeir yrðu þá 51. Þegar ég kom auga á það í æsku að til væri Alþingi sátu þar, held ég, 50 manns þannig að það er þá ekki mikil breyting frá þeim tíma. Við sem erum annaðhvort rétt innan við jaðar þingsins eða rétt utan við hann yrðum kannski ekki mjög ánægð með þetta en ekki má hugsa málin út frá sínum eigin hagsmunum. Þetta væri svarið við þeirri umkvörtun að þetta auki kostnað þjóðarinnar á þinghaldinu og væri, held ég, alveg saklaust að gera þó að e.t.v. þyrfti þá að bæta aðstöðu og hjálp við þá þingmenn sem eftir eru.
Hitt er rétt hjá hv. þm. Sigurði Kára Kristjánssyni að ef hér bætast við þingmenn í stað þeirra sem sitja á ráðherrastóli þá er það ekki eingöngu þannig að stjórnarliðar fái 12 menn sem eru bæði ráðherrar og þingmenn og 12 aðstoðarmenn þeirra úr sínum hópi í ráðuneytin heldur bætast sem sé við 12 menn í stjórnarliðið sem eru þá þingmenn að auki. Hv. þm. Sigurður Kári Kristjánsson ræddi þá stöðu sem nú er uppi á þinginu þar sem meiri hlutinn er óvenjumikill, þó að það sé ekki einstætt, og það væri ekki í þágu lýðræðisins að taka upp slíka stöðu. Flutningsmenn tillögu af þessu tagi verða líka að gera grein fyrir því með hvaða hætti þeir ætlast til að aðstaða stjórnarandstöðuþingmanna og stjórnarandstöðunnar yrði bætt til þess að vega upp á móti þeim áhrifum sem þetta hefði á valdahlutföllin milli stjórnar og stjórnarandstöðu hér á þinginu. Ég tel að þetta sé hægt að gera en það er sjálfsagt að slík umræða fylgi tillöguflutningi af þessu tagi sem ég hef að öðru leyti allt gott um að segja.