135. löggjafarþing — 55. fundur,  30. jan. 2008.

stjórnarskipunarlög.

134. mál
[15:18]
Hlusta

Flm. (Kristinn H. Gunnarsson) (Fl):

Virðulegi forseti. Ég vildi aðeins í lok umræðunnar koma upp og þakka þeim sem tóku þátt í henni fyrir sitt framlag, bæði ráðherrum og þingmönnum. Hér hefur farið fram ágæt umræða um efni þessa frumvarps og álitamál sem auðvitað tengjast því sem lagt er til í frumvarpinu. Það er eðlilegt að menn bendi á ýmis atriði sem þeir telja ástæðu til að velta fyrir sér eða gera öðruvísi en lagt er til í frumvarpinu.

Ég er í meginatriðum alveg sammála því sem komið hefur fram, m.a. held ég hjá hæstv. forsætisráðherra og hv. þm. Merði Árnasyni, að þessi frumvarpsflutningur um breytingar á stjórnarskránni og umræður um það þjónar auðvitað þeim tilgangi að setja málið í farveg eða vekja upp umræðu um tiltekin atriði og reyna að efla hana þannig að þegar dregur að lokum kjörtímabilsins hafi það áhrif á það sem þá kann að verða samþykkt varðandi breytingar á stjórnarskránni. Ég lít svo á að forsætisráðherra hafi í raun og veru sagt það að breytingar eða hugmyndir um breytingar á stjórnarskránni yrðu teknar til meðferðar fljótlega á þessu kjörtímabili og farið yfir þær með það í huga að ná samkomulagi fyrir komandi þingkosningar um breytingar sem yrðu afgreiddar þá.

Það er ekki margt í því sem fram hefur komið sem kallar á að fara sérstaklega yfir það umfram það sem þegar hefur verið gert. Ég vildi þó segja varðandi athugasemdir um kostnað sem hlýst af því ef ráðherrar taka inn varamann meðan þeir sitja á ráðherrastóli, að það eru alveg gild sjónarmið. Ég lét það koma fram í framsöguræðu minni að ég teldi að það væru rök í þeirri gagnrýni sem menn yrðu að taka tillit til. Þess vegna finnst mér líka hitt betri tillaga, að hafa ekki þessa útgönguleið heldur skýra línu, þ.e. annaðhvort eða. Annaðhvort eru menn ráðherrar og sitja þá ekki á löggjafarþinginu eða menn sitja á löggjafarþinginu og eru þá ekki ráðherrar. Ef það gerist hlýst enginn kostnaður af breytingunni vegna þess að kostnaður við ráðherra er bara kostnaður ráðuneytisins en ekki kostnaður þingsins. Það má því frekar segja að það verði sparnaður hjá Alþingi við þá tillögu að aðskilja algjörlega ráðherrasetu og þingmennsku.

Hugmyndir um slíkan aðskilnað hafa lengi verið á kreiki og hv. þm. Mörður Árnason upplýsti að það hefði verið samþykkt í meginatriðum á landsþingi Samfylkingarinnar sem stefna þeirra. Slíkt á við um fleiri flokka, eins og Framsóknarflokkinn, þannig að vissulega er töluverður stuðningur við það að efla þrígreiningu valdsins og sérstaklega að snúa betur í sundur framkvæmdarvaldið og löggjafarvaldið frá því sem nú er.

Virðulegi forseti. Ég vildi aðallega koma hér upp til að þakka fyrir framlag þeirra sem hafa talað við umræðuna og vonast til að það leiði til ánægjulegrar niðurstöðu þegar þar að kemur undir lok kjörtímabilsins.