landshlutabundin orkufyrirtæki.
Frú forseti. Ég er þakklátur hv. þingmanni fyrir þann áhuga sem hann hefur sýnt á orkumálum og sannarlega hefur hann gefið mér tilefni til þess að læra töluvert mikið um þau mál við undirbúning þeirra svara sem ég hef nú veitt honum. Það gleður mig að hv. þingmaður skuli alla vega hafa verið þokkalega ánægður með að minnsta kosti sum þeirra.
Spurningin um landshlutabundin orkufyrirtæki er töluvert gömul. Ég minnist þess að þegar ég var að byrja í blaðamennsku fyrir 30 árum eða svo, var töluvert um það skrifað í blað sem ég vann þá á og birti, ef ég man rétt, ófá viðtöl við hv. þingmann. Það var á þeim tímum meðan orkuöryggið var allt öðruvísi í landinu. Rafmagnsskortur var víða á landinu og afhendingaröryggi var ákaflega ótryggt. Það var þá sem sveitarfélögin áttu hvað drýgstan þátt í því að byggja upp raforkuöflun og raforkudreifingu.
Það var hins vegar einn af forverum mínum í embætti iðnaðarráðherra og sömuleiðis á ritstjórastóli Þjóðviljans og eitt af átrúnaðargoðum bernsku okkar beggja, Magnús Kjartansson, sem beitti sér mjög sterklega fyrir því að byggðalínan væri sett á fót. Ég man nú sérstaklega eftir því að af virðingu við pólitískar skoðanir hans var partur af þeim einmitt kallaður rauði hundurinn og höfðum við gaman af sem vorum í baklandi hans á þeim tíma.
Síðan hefur þetta breyst með byggðalínunni. Ég er þeirrar skoðunar að ýmis rök sem voru fyrir slíkum fyrirtækjum á sínum tíma séu ekki endilega fyrir hendi í dag. Á þeim tíma voru settar á fót nefndir til að velta fyrir sér og vinna að slíkum landshlutabundnum fyrirtækjum. Upp úr því spratt Orkubúið t.d.
Það er hugsanlegt að ég hafi misskilið spurningu hv. þingmanns örlítið. Ég taldi að hv. þingmaður væri með orðalagi spurningarinnar, „vestanverðu landinu og norðausturhorninu“, að velta því fyrir sér hvort það ætti að leysa hluta af eignum Landsvirkjunar, skella því saman við t.d. Orkubú Vestfjarða og þann part Rariks sem er á vestanverðu landinu í eitt fyrirtæki. Það sinnti þá bæði framleiðslu og dreifingu raforku og eftir atvikum heitu vatni. Sams konar yrði gert á þeim svæðum sem er að finna á norðausturhorninu þar sem koma nú upp mjög öflug orkuveitusvæði en auðvitað er einnig að finna fyrirtæki sem heimamenn vilja gera tilkall til, eins og Laxárvirkjun og Krafla, og eru undir eignarhaldi Landsvirkjunar.
Þegar ég skoða þessar spurningar nálgast ég þær annars vegar frá því pólitíska viðhorfi mínu að efla eigi samkeppni í framleiðslu og sölu á orku og þar með að lækka verð til neytenda. Hins vegar tel ég að tryggja eigi opinbert eignarhald á sérleyfisstarfseminni með það að markmiði að tryggja ákveðnar nauðþurftir íbúanna um orku, tryggja öruggan rekstur, og ekki síst að tryggja að kostnaður sé sem lægstur.
Ég get út af fyrir sig fallist á það með hv. þingmanni að fyrirtæki af því tagi sem hann veltir fyrir sér, gætu tryggt öruggan rekstur og aðgang íbúa að orku á viðkomandi svæðum, væru líklega orkuöryggi fyrir neytendur. Ég er þó ekki endilega viss um að þau mundu tryggja það fyrir allan atvinnurekstur, jafnvel þann sem við mundum ekki fella undir skilgreiningu á svona hefðbundinni stóriðju.
Ég dreg hins vegar í efa að þeim þáttum væri betur sinnt með því fyrirkomulagi sem hv. þingmaður nefnir og mér finnst vanta rök sem standa til þess. Ég er þeirrar skoðunar að frá sjónarhóli orkuöryggis, sem ég sem iðnaðarráðherra þarf að hafa mjög sterklega í öndvegi, sé ákaflega vel borgið með hringtengingu raforkukerfisins og með þeirri lögboðnu skyldu Landsvirkjunar sem komið var á um að afla raforku fyrir landið allt. Það sæi mjög vel fyrir orkuöryggi þótt það sé vissulega, eins og áður hefur komið fram í samtölum okkar, kominn tími til þess að endurbyggja og endurbæta byggðalínuna. Ég tel því ekki sérstaka þörf á slíkum landshlutafyrirtækjum til þess að efla orkuöryggi, hvorki frá sjónarhóli afhendingaröryggis né verðöryggis. Það er nokkuð vel tryggt í núverandi kerfi.
Hitt skiptir líka máli í mínum huga að landshlutabundin orkufyrirtæki mundu tæpast ná þeim pólitísku markmiðum sem ég hef varðandi samkeppni um framleiðslu og sölu. Ég hef líka, eins og hv. þingmaður veit, tekið undir þau sjónarmið Samkeppniseftirlitsins að æskilegt sé að skilja betur að samkeppnisþættina framleiðslu og sölu og dreifingu raforkunnar sem er sérleyfisbundin samkvæmt lögum.
Það sjónarmið sem kemur fram hjá hv. þingmanni miðar hins vegar að því, eins og ég veit og hann hefur rökstutt áður, að hverfa frá þeim aðskilnaði og sameina aftur þá (Forseti hringir.) þætti sem eru farin á annan veg í dag. Að öllu samanlögðu, frú forseti, er ég þeirrar skoðunar að sú hugmynd sem vakir í fyrirspurn hv. þingmanns henti ekki nægilega vel (Forseti hringir.) núverandi aðstæðum eins og kerfið gerir.