Ísland á innri markaði Evrópu.
Hæstv. forseti. Ég heyrði ekki betur en hv. formaður utanríkismálanefndar væri svolítið að setja ofan í við félaga sína í stjórnarsamstarfinu í þessari umræðu. En hvað um það. Það sem mig langar að spyrja hv. þm. Bjarna Benediktsson um er það sem hann reifaði hér, um vinnubrögð og aðkomu þingsins að umfjöllun um mál á frumstigi. Hann lýsir því hvernig þessum málum er háttað í norska Stórþinginu, sem ég tæpti lauslega á í ræðu minni einnig. Með hvaða hætti sér hann fyrir sér að þessu verði komið á?
Ég spyr hann vegna þess að hann er formaður utanríkismálanefndar. Ég geng út frá því að utanríkismálanefnd muni þar hafa ríku hlutverki að gegna. Hvernig sér hann fyrir sér að þetta verði gert og hvernig sér hann það hreint praktískt fyrir sér? Þarf það að gerast með þingsályktunartillögu í þingi eða er þetta mál sem formaður utanríkismálanefndar getur gengið í gagnvart þinginu sjálfu, forseta þingsins, forsætisnefnd, o.s.frv.? Ég er honum sammála um að málið eigi að vera á forræði þingsins fyrst og fremst og það verði sjálft að taka ákvörðun um hvernig það vill skipa þessum málum, haga vinnubrögðum og umræðunni á sínum vettvangi.
Annað mál er það hvernig málið snýr að framkvæmdarvaldinu, Stjórnarráðinu, ráðuneytum o.s.frv. En þingið sjálft verður að móta sér skoðun á því hvernig þessum málum er háttað og taka þá væntanlega ákvörðun. Hvenær telur þingmaðurinn að hægt sé að ganga í það og taka ákvörðun um fyrirkomulag þessara mála?