135. löggjafarþing — 57. fundur,  31. jan. 2008.

Ísland á innri markaði Evrópu.

350. mál
[15:37]
Hlusta

Illugi Gunnarsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hvað varðar muninn á regluverki Bandaríkjamanna og Evrópubúa þá er það alveg rétt að margt í regluverkinu sem er lagt til grundvallar í samstarfi ESB-þjóðanna er mjög ágætt. Vandinn liggur oft hjá þjóðríkjunum sjálfum, þ.e. í þeim reglum sem menn setja sér. Það eru ýmis fræg og þekkt dæmi um alveg sérdeilis furðulegar reglur sem eru látnar viðgangast í hagkerfum þessara landa einmitt vegna þess að það er að reyna að verja sig gegn samkeppni. Það er verið að reyna að verja störf sem ekki lengur eiga rétt á sér, standast ekki samkeppni við nýja tækni, breytta atvinnuhætti o.s.frv.

En hitt er líka það og það virðist vera innbyggður hvati í Evrópusambandið, að auka jafnt og þétt ýmsar reglugerðir, oft þannig að manni finnst þær óskiljanlegar. Ég vitna til ummæla þekktra íslenskra viðskiptajöfra sem hafa haft af því áhyggjur að ef Ísland gengi í ESB þá værum við að taka yfir regluverk sem mundi gera okkur það síður mögulegt að sækja inn á ýmsa aðra markaði sem við höfum núna svigrúm til að gera.

Hvað varðar aldurssamsetninguna aftur og innflutning erlends vinnuafls, þá tek ég undir það með hv. þingmanni að það skiptir miklu máli hvernig við tökum á móti þessu vinnuafli, hvort sem heldur er almennt í Evrópu eða á Íslandi. Það er þó þannig að í þeim tölum sem ég nefndi áðan, sem flestar miðast við árið 2025, mun innflutningur á vinnuafli lítil áhrif hafa á þær niðurstöður. Menn hafa meira að segja reiknað það og skoðað, t.d. við Þýskaland að þótt fjöldi innflytjenda á ári væri tvöfaldaður frá því sem nú er, þá mundi það ekki breyta heildarniðurstöðunni sem menn standa frammi fyrir í Þýskalandi. Ef Þjóðverjar vilja halda uppi sama þjónustustigi fyrir eldri borgara og nú er árið 2025, þá þyrfti að hækka skatta í Þýskalandi um fleiri tugi prósenta. Það má ljóst vera að ekkert hagkerfi getur talist samkeppnishæft (Forseti hringir.) ef grípa þyrfti til slíkra örþrifaráða.