Ísland á innri markaði Evrópu.
Frú forseti. Í upphafi máls míns vil ég fagna sérstaklega því nýmæli sem hér er á ferðum að ræða Evrópumálin sérstaklega og ég vil þakka hæstv. utanríkisráðherra kærlega fyrir mjög góða og vandaða skýrslu um þessi efni.
Ísland hefur haft tiltölulega sterka stöðu í alþjóðamálum miðað við stærð og hefur það m.a. byggst á þátttöku Íslands í Sameinuðu þjóðunum, NATO, Norðurlandaráði, EFTA og OECD. Sú staða hefur breyst og kann að breytast enn frekar vegna þróunar Evrópusamstarfsins. EES-samningurinn er lífæð Íslendinga í alþjóðaviðskiptum. EES-samningurinn hefur reynst Íslendingum drjúgur og má færa rök fyrir því að sá uppgangur og þau afnám hafta sem hafa einkennt íslenskt efnahagslíf undanfarin ár sé fyrst og fremst EES-samningum að þakka. Einnig hefur EES-samningurinn stuðlað að hinu gerbreytta samfélagi sem við lifum nú í. En staða EES-samningsins gagnvart stjórnarskránni hefur þó lengi vakið upp spurningar. Þegar Ísland gerir samninga við erlend ríki eða alþjóðastofnanir þurfum við að skoða 1., 2. og síðan 21. gr. stjórnarskrárinnar. Þessi ákvæði hafa verið óbreytt síðan lýðveldið var stofnað árið 1944. Á öllum öðrum Norðurlöndum, líka í Noregi sem stendur fyrir utan ESB, hafa verið gerðar breytingar á stjórnarskrám til að geta mætt þeim þjóðréttarlegu skuldbindingum sem geta leitt af þjóðréttarsamningum. Í 93. gr. norsku stjórnarskrárinnar er að finna heimild til framsals valds til alþjóðastofnana ef þrír fjórðu þingmanna samþykkja slíkt. Í IX. og X. kafla sænsku stjórnarskrárinnar er að finna svipað ákvæði samþykki þrír fjórðu þingmanna, en í 20. gr. dönsku stjórnarskrárinnar er framsal valds til alþjóðastofnunar heimilt með samþykki fimm sjöttu þingmanna.
Í nefndaráliti fjögurra lögfræðinga á vegum utanríkisráðuneytisins, dags. 6. júlí 1992, var komist að þeirri niðurstöðu að EES-samningurinn bryti ekki í bága við íslensku stjórnarskrána. Þetta álit varð hins vegar mjög fljótlega umdeilt og er það enn í dag. EES-samningurinn sem tók gildi 1. janúar 1994 hefur þó breyst talsvert síðan þá vegna hins síkvika eðlis samningsins sem gerir hann ólíkan mörgum öðrum þjóðréttarsamningum. Það má færa gild rök fyrir því að framsal valds til alþjóðastofnana vegna EES-samningsins sé algerlega á mörkunum að vera leyfilegt samkvæmt stjórnarskránni. Ég tel því að við ættum að íhuga á einhverjum tímapunkti breytingu á stjórnarskránni hvað þetta varðar.
Rétt er að rifja upp hver er aðgangur íslenskra stjórnvalda að ákvarðanatöku Evrópusambandsins. Hann er mestur í upphafi en hann er lítill sem enginn á þeim vettvangi þar sem endanlegar ákvarðanir eru teknar sem þó hafa gríðarleg áhrif hér á landi. Ísland og önnur EES-ríki hafa engin áhrif á frumrétt ESB. Þau hafa ekki atkvæðisrétt þegar fjallað er um afleidda löggjöf eða breytingar á samstarfinu. EES-ríkin geta þess vegna neitað að taka upp nýja löggjöf sem snertir EES-samninginn en þá fellur viðkomandi kafli samningsins úr gildi fyrir Ísland, Noreg og Liechtenstein og aðgangur ríkjanna að innri markaði Evrópusambandsins á viðkomandi sviði er úr sögunni. En neitunarvaldið svokallaða er því miður óraunhæft enda mundi það valda miklu uppnámi og stefna í hættu markmiðinu um einsleitni markaðssvæðisins og samræmingu reglna í mikið uppnám.
EES-samningurinn hefur sömuleiðis haft margvísleg áhrif á dómsvaldið sem ekki voru fyrirséð. Í hæstaréttardómi frá 16. desember 1999 í svokölluðum Erlu Maríu-dómi gekk Hæstiréttur lengra en áður og dæmdi íslenska ríkið skaðabótaskylt vegna vanrækslu þess við lögfestingu á tilskipun frá Evrópusambandinu. Vísað var í niðurstöðu EFTA-dómstólsins frá desember 1998 þar sem íslensk stjórnvöld voru talin vera bótaskyld þrátt fyrir að EES-samningurin segði ekkert um slíkan rétt.
Frú forseti. Eins og alþjóð veit eru mismunandi skoðanir á milli stjórnarflokkanna um hvort sækja beri um aðild að Evrópusambandinu. Núverandi ríkisstjórn mun þó ekki skila auðu í Evrópumálum og mun hún ásamt hinni þverpólitísku Evrópunefnd fylgjast vel með þróun mála á þessum vettvangi. En í þessari umræðu langar mig þó að draga fram fimm punkta sem ég tel vera afskaplega mikilvægt að hafa í huga þegar kemur að hugsanlegri aðild að Evrópusambandinu.
Í fyrsta lagi tel ég að fiskveiðistjórn og rétturinn til nýtingar auðlindarinnar muni ekki breytast við inngöngu í Evrópusambandið.
Í öðru lagi að viðskiptakostnaðurinn við aðild muni minnka og verðlag lækka.
Í þriðja lagi að fjárfestingar útlendinga muni aukast hér á landi við aðild sem ég tel hins vegar að sé full þörf á.
Í fjórða lagi að Íslendingar gætu haft stóraukin áhrif á löggjöf Evrópusambandsins en núna þurfa Íslendingar að taka yfir stóran hluta af lykillöggjöf Evrópusambandsins.
Í fimmta lagi, sem er almenns eðlis, tel ég að með fullri aðild að Evrópusambandinu værum við orðinn hluti af Evrópu þar sem við eigum heima.
Hafi fólk áhyggjur af sjálfstæði þjóðarinnar í þessu sambandi við það að verða aðilar að Evrópusambandinu þá varpa ég fram þeirri spurningu hvort fólk telji að Danir, Frakkar eða Írar séu ekki sjálfstæðar þjóðir.
Ef við skautum örlítið yfir sjálfa sjávarútvegsstefnuna, sem oft hefur verið helsti þröskuldur á vegi margra varðandi inngöngu Íslands í ESB, þá er ljóst að hún byggist á veiðireynslu. Og það á ekki að koma neinum á óvart að Ísland er eina þjóðin sem hefur veiðireynslu í íslenskri lögsögu og samkvæmt núgildandi reglum ESB fengi því Ísland alla þá kvóta sem ákveðnir eru í íslenskri lögsögu eftir að við gengjum í ESB.
Til viðbótar er hægt að gera kröfu um að erlend sjávarútvegsfyrirtæki, sem þá ættu rétt á að fjárfesta í íslenskum sjávarútvegi, mundu hafa raunveruleg efnahagsleg tengsl við Ísland og það kæmi auðvitað í veg fyrir að verðmæti í sjávarafurðum ætti greiða leið úr landi. Ég tel að fjárhagslegur ávinningur Íslands af inngöngu í ESB geti verið mjög mikill burt séð frá styrkjum og aðildarkostnaði sem ég held að sé aukaatriði í þessari umræðu. Ég held að viðskiptakostnaðurinn mundi minnka, fjárfestingar aukast, vextir lækka og verð til neytenda lækka.
Ég tel sömuleiðis að upptaka evrunnar mundi þýða milljarða króna ávinning á hverju einasta ári. Við vitum að Evrópusambandið er stærsta viðskiptablokk í heimi og um 70% af utanríkisviðskiptum Íslands eru við ríki Evrópusambandsins eða ríki hins Evrópska efnahagssvæðis. Með upptöku evrunnar yrðu öll viðskipti einfaldari og auðveldari og tæknilegar viðskiptahindranir hyrfu. Þátttaka Íslands í Myntbandalaginu mundi sömuleiðis stuðla að auknum stöðugleika, lægri viðskiptakostnaði ásamt minni verðbólgu en ella væri. Sameiginleg mynt eykur að mínu mati framleiðni og hagsæld vegna minni viðskiptakostnaðar, aukins áhuga fjárfesta og fyrirtækja á landinu, stöðugra verðlags, hreyfanlegra vinnuafls, auðveldari verðsamanburðar, öflugri fjármálamarkaðar, minni gengisáhættu, lægri vaxta og sparnaðar vegna gjaldmiðilsskipta. Hagþróun þeirra ríkja ESB sem bjuggu við ólíkari hagsveiflu en þá sem mátti finna hjá meginþorra ESB-ríkjanna, t.d. Finnlands og Írlands, hefur ekki farið úr böndunum við þátttöku þessara ríkja í Myntbandalaginu. En upptaka evrunnar með aðild Íslands að Evrópusambandinu er hins vegar langtímamarkmið, enda uppfyllir Ísland ekki þau skilyrði sem Myntbandalagið setur. Þetta er hins vegar umræða sem við þurfum að taka. Eins og allir vita er það ekki á dagskrá núverandi ríkisstjórnar að ganga í Evrópusambandið en það skiptir miklu máli fyrir ríkisstjórnina og alla stjórnmálaflokka að fylgjast mjög vel með hvað er að gerast á þessum vettvangi. Það eru gríðarlegir hagsmunir af samstarfinu á hinum evrópska vettvangi og hlutirnir breytast hratt og það skiptir máli að Íslendingar geti fylgst með og setið við borð þegar ákvarðanir eru teknar.
Ég er sannfærður um að með inngöngu Íslands í ESB yrði Ísland áþreifanlegur hluti af Evrópu. Ég er líka sannfærður um að íslenskt samfélag mundi njóta góðs af inngöngu í ESB. Ég hef þá trú að við munum enda þar, þótt það verði ekki strax í ljósi þess að ekki er þverpólitísk samstaða um að fara þá leið, og ég tel að það skipti miklu máli að áður en við förum í þann leiðangur að sækja um aðild að Evrópusambandinu sé tiltölulega góð samstaða meðal stjórnmálaflokkanna og þjóðarinnar um að það sé rétt skref. En ég undirstrika að það verður alltaf íslenska þjóðin sem mun hafa síðasta orðið þegar kemur að ákvörðun um að verða aðili eða ekki. Það er grundvallaratriði sem ég held að hafa þurfi í huga þegar við ræðum þessa eina mikilvægustu spurningu samtímans.
Að lokum langar mig að minnast á það, frú forseti, að það eru engin dæmi þess í sögu Evrópusambandsins að það samband hafi tekið ákvörðun gegn meginhagsmunum aðildarþjóða sinna.