Ísland á innri markaði Evrópu.
Hæstv. forseti. Til að fyrirbyggja allan misskilning tók ég það alls ekki þannig að það sem hv. þingmaður sagði í ræðu sinni áðan beindist til mín eða núverandi hæstv. utanríkisráðherra. Við erum algjörlega sammála um þá fyrirvara og það sem gert var eða ekki var gert varðandi akstur og hvíldartíma á sínum tíma.
Í gangi er ákaflega merkilegt samkomulag milli aðila frá ASÍ og atvinnurekendum og öðrum hvað það varðar. Það er farið frá okkur úr samgönguráðuneytinu og þar taka fulltrúar okkar og sendiráðið við því og reyna að fylgja því eftir.
Ég er alveg sannfærður um að það er til mikilla bóta. Þar eru tekin fram atriði sem miðuð eru við okkar íslensku aðstæður. Ef hv. þingmaður hefur ekki séð það skal ég nálgast það og koma því til hans. Ég er alveg viss um að ég og hv. þingmaður erum sammála um það sem þar kemur fram og munum vinna málinu framgang. Engin breyting eða reglugerð verður undirrituð meðan það er í gangi og við reynum að sækja okkur undanþágur fyrir séríslenskar aðstæður. Ég treysti á hv. þingmann sem öflugan liðsmann hvað það varðar þegar að því kemur.
Hann nefndi tilskipun um flugvallargjöld. Ég vil rétt í lokin minnast á svokallaða raforkutilskipun af því mikið var tekist á um hana á síðasta kjörtímabili. Allt sem gert var í framhaldi af því, breytingar á regluverki raforku á Íslandi, held ég að hafi ekki verið til góðs og margir á síðasta þingi efuðust um að við þyrftum að taka það upp. Ég var einn af þeim og tel hiklaust að margt af því sem kom inn hafi ekki verið gott fyrir okkur. Þar var fjallað um samkeppni á milli landa og annað slíkt. Samkeppni frá eyríkinu Íslandi við Norðurlönd eða Evrópu er ekki á þessu stigi núna. Það getur vel verið að það hafi verið þannig með akstur og hvíld eins og fyrir mörgum árum, að menn hafi ekki haldið vöku sinni þar.