Ísland á innri markaði Evrópu.
Virðulegur forseti. Ég tek undir það með þingmanninum að mikilvægt er að framhald verði á þessari umræðu, að við látum ekki þar við sitja að þessi skýrsla sé gerð og síðan ekki söguna meir. Ég tel tímabært að fara yfir það, og það eigi að gerast í samráði og samtali milli utanríkismálanefndar og utanríkisráðuneytisins, hvernig haga eigi samstarfi nefndar og ráðuneytis. Því ég hygg, eins og ég sagði áðan, að ekki dugi fyrir nefndina að fá þessar tilskipanir og gerðir inn til sín þegar í raun er búið að ganga frá þeim, það þurfi að gerast fyrr. Þá er það spurning líka hvort það eigi að vera allar gerðir og tilskipanir og samþykktir eða hvort einhvern veginn eigi að sortera það niður, og vera með einhvern forgang í því þannig að betur sé hægt að ná utan um einstök mál.
Hvað varðar framhald á umræðunni í þessari skýrslu lýsi ég mig fyllilega reiðubúna til að koma inn í þingnefndir, eða að starfsmenn ráðuneytisins geri það, og fari yfir stöðuna á einstökum tilskipunum og við skoðum með hvaða hætti er hægt að fylgja málum eftir. En þetta er auðvitað undir þinginu komið. Það er þingsins að ákveða hvernig það vill haga þessari umræðu og koma þá með tillögur um það til okkar í utanríkisráðuneytinu.