Ísland á innri markaði Evrópu.
Virðulegur forseti. Varðandi það sem fram kom hjá hv. þm. Ögmundi Jónassyni hér áðan og sneri að Alþjóðabankanum og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og öðrum slíkum stofnunum get ég út af fyrir sig tekið undir það að ástæða væri til að ræða ýmislegt sem varðar alþjóðamálin betur hér á þinginu. Ég tel raunar sérstakt og dálítið merkilegt að aldrei skuli hafa farið fram á Alþingi Íslendinga umræða um samvinnu á sviði þróunarmála. Það er undir í skýrslu utanríkisráðherra sem hefur verið flutt hér árlega. Hún er mjög stór og viðurhlutamikil og þar af leiðandi hefur slík umræða kannski ekki komist á.
En auðvitað, miðað við umfang þessa málaflokks, ætti að fara fram umræða í þinginu um það. En það er ekki efni þessarar skýrslu. Það sem ég var helst að hnýta í hjá þingmanninum er hve illa mér gengi að gera honum til hæfis. Ég væri að byrja að feta þessi spor og færa Evrópuumræðuna hingað inn en væri eiginlega gagnrýnd fyrir það að sú umræða væri ekki nógu víðfeðm en samt ekki nógu þröng. Þetta er eins og í sögunni um hana Kráku sem þurfti bæði að vera klædd og nakin eins og þar stendur.
Varðandi þjónustutilskipunina er minn skilningur sá að umdeildustu atriðin hafi verið felld út úr tilskipuninni og þar á meðal heilbrigðisþátturinn. Hann er ekki hluti af tilskipuninni núna. Það liggur ekki fyrir hvenær tillaga um slíkt verður lögð fram ef hún verður lögð fram. Ég veit að þetta er pólitískt mjög viðkvæmt mál og umdeilt en þetta er ekki orðið að veruleika og við skulum ekki gefa okkur að þannig verði það. Um þetta er ágreiningur, m.a. í framkvæmdastjórn ESB, og því er ekki ástæða til að ætla að þetta fari þangað inn.
Við höfum haft samráð hér á landi við hagsmunaaðila um þjónustutilskipunina og það (Forseti hringir.) mun halda áfram og eins og ég sagði þá er sjálfsagt að taka þetta til umræðu í utanríkismálanefnd.