Ísland á innri markaði Evrópu.
Virðulegur forseti. Hv. þm. Ögmundur Jónasson er stjórnlyndur maður og vill ekki aðeins stýra sínum eigin málflutningi heldur mínum líka hér í þingsalnum. Hann verður nú að sætta sig við að það vald er honum ekki fólgið.
Varðandi afstöðuna til heilbrigðistilskipunarinnar, hvort við munum beita neitunarvaldi ef hún verður hluti af þjónustutilskipuninni, þá tel ég ekki ástæðu til að svara slíkum ef-spurningum vegna þess að það er ekkert núna sem segir okkur að þetta verði hluti af þjónustutilskipuninni. Við skulum sjá hvernig málið fer fram og taka um það umræðu hér, pólitíska umræðu þess vegna hér á þinginu. Þetta er væntanlega ekki bara spurningin um það hvað ríkisstjórninni finnst heldur ætti þingið að hafa einhverja skoðun á því líka og þingnefndir hvað þeim finnst um þessa heilbrigðistilskipun.
Hvað varðar raforkumálin þá var ég þeirrar skoðunar á sínum tíma að við hefðum ekki staðið vaktina varðandi raforkutilskipunina. Við hefðum sofið á verðinum þar og hefðum getað (Forseti hringir.) fengið inn í hana undanþágur fyrir okkur ef við hefðum komið fyrr að þeim málum en gert var. Ég hygg hins vegar að það sé mjög erfitt (Forseti hringir.) að koma sér undan tilskipuninni.