Ísland á innri markaði Evrópu.
Virðulegur forseti. Það er alfarið á valdi Alþingis hvernig það vill haga innflytjendalöggjöf sinni. Þar sem við undirgengumst hins vegar með samningnum við hið Evrópska efnahagssvæði er að íbúar á hinu Evrópska efnahagssvæði eiga ákveðinn rétt hér á landi. Það er frjáls för á milli þeirra landa sem eru aðilar að Evrópska efnahagssvæðinu. (Gripið fram í.) Það er frjáls för á milli þeirra landa þannig að þegar samningurinn var gerður var réttur fólks útvíkkaður.
Eftir stendur að við höfum íslensk lög sem eru mjög takmarkandi hvað varðar leyfi fólks til að flytjast hingað og starfa hér á landi. Við höfum alveg á valdi okkar að breyta því og ég veit ekki betur en að búið sé að leggja fram hér í þinginu — og það er þá tækifæri fyrir hv. þingmann til þess að koma þessum sjónarmiðum að — frumvarp til laga til innflytjendamála sem bæði dómsmálaráðherra og félagsmálaráðherra hafa flutt hér, og eru til meðferðar á þingi og í þingnefndum núna.