135. löggjafarþing — 57. fundur,  31. jan. 2008.

Ísland á innri markaði Evrópu.

350. mál
[17:56]
Hlusta

Kristinn H. Gunnarsson (Fl) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vona að við getum lagt saman krafta okkar, ég og hv. þingmaður, varðandi breytingar eða athugun á breytingum á þeim reglum sem til þessa hafa gilt varðandi atvinnuleyfi fyrir útlendinga frá ríkjum utan Evrópska efnahagssvæðisins og við getum fundið niðurstöðu sem rýmkar aðstæður í því frá því sem verið hefur á undanförnum árum.

Hvað varðar almenna afstöðu til frjálsrar farar útlendinga á milli landa eru það viðhorf þeirra sem skipa sér í raðir frjálslyndra flokka að vinna að frjálsri för manna á milli landa. Það er engin launung á því að það á ekki við bara um viðhorf hins íslenska flokks heldur evrópskra og víðar, að menn hafa leitast við að greiða götu einstaklinga til þess að ráða för sinni sjálfir, draga úr höftum og bönnum og takmörkunum sem stjórnvöld í einstökum ríkjum hafa í gegnum tíðina komið upp í þeim tilgangi að hafa stjórn á þegnum sínum.

Það eru ekki svo mörg ár í sögu Evrópu sem liðin eru frá því að stjórnvöld fóru að sýna stjórnlyndi sitt með þessum hætti. Frjáls för landsmanna í Evrópu var reglan um aldir og við hljótum að leggja áherslu á þjóðfélag sem treystir þegnum sínum og treystir þegnum annarra til þess að fara um löndin, til að dvelja þar og starfa.