135. löggjafarþing — 57. fundur,  31. jan. 2008.

Ísland á innri markaði Evrópu.

350. mál
[18:27]
Hlusta

Steingrímur J. Sigfússon (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Svo ég haldi þá bara áfram að blanda mér inn í orðaskipti þeirra hv. þingmanna Ögmundar Jónassonar og Árna Páls Árnasonar þá gæti verið fróðlegt að taka það upp — það væri þá bara létt æfing í því — að fara fram með það gagnvart Evrópusambandinu ef það á að innleiða breytingar og viðbætur við orkutilskipunina á sviði raforkumála sem boðuð var í september síðastliðnum, hvort það sé þá í tengslum við þær breytingar hægt að komast undan henni að einhverju leyti. Af hverju þarf það að vera óumbreytanlegt um aldur og ævi ef í ljós kemur að reglur af þessu tagi henta engan veginn eins og þær gera ekki við íslenskar aðstæður og öllum mátti ljóst vera? Það var alveg skólabókardæmi um fáránleikann sem stundum getur komið upp að Ísland fari að innleiða án nokkurra fyrirvara, aðlögunar eða undanþága tilskipun sem er sniðin að því að búa til einn sameiginlegan orkumarkað á meginlandi Evrópu og verslun með raforku yfir landamæri sem á alls ekkert við hér eins og allir sjá, eyju úti í miðju Atlantshafi og einangraðan orkumarkað.

Ég tek undir að það er mikilvægt að umræður um stórmál fari fram oft og reglulega, að þær séu málefnalegar og uppbyggilegar og skili mönnum nokkuð fram á veginn og það hefur þessi umræða að mestu leyti verið. Hún hefur verið eiginlega ágæt. Almennt hafa umræður um utanríkismál hér farið batnandi, sérstaklega nú seinni árin. Það er himinn og haf á milli þess að eiga orðaskipti nú, þó að andstæðar skoðanir séu að einhverju leyti uppi um utanríkismál, og voru þegar ég var að byrja á því hér fyrir býsna mörgum árum síðan. Það var mér mikill lærdómur að reyna að tala hér um utanríkismál á sínum tíma þegar ég var nýkominn inn á þing sem friðarsinni og herstöðvarandstæðingur. Það var eins og við manninn mælt að sumir andstæðinga minna voru óðar komnir til Sovét, aftur á Stalínstímann, og ég var orðinn ábyrgur fyrir því öllu saman. Þannig var nú umræðan stundum svo uppbyggilegt sem það var og miklu sem það skilaði.

Ég tek því hjartanlega undir það að það er mikilvægt að við getum rætt þessi mál yfirvegað og uppbyggilega og skipst á skoðunum (Forseti hringir.) með rökum og séum ekki að barna þá hluti neitt hvert fyrir öðru heldur tölum saman út frá okkar sannfæringu (Forseti hringir.) og virðum ólík sjónarmið í þessum efnum.