135. löggjafarþing — 57. fundur,  31. jan. 2008.

Ísland á innri markaði Evrópu.

350. mál
[18:35]
Hlusta

Árni Johnsen (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil aðeins vara við þeim tóni sem var í ræðu hv. þm. Bjarna Harðarsonar að hann hefði ekki áhyggjur af sjávarútveginum í Evrópusambandinu, vegna þess að ef við töpum eignarhaldinu á sjávarútveginum þá er fjandinn laus. Þetta snýst allt um það. Þá spjarar íslenskur sjávarútvegur sig ekki, það eru einhverjir aðrir sem spjara sig á okkar kostnað, hvort sem það eru Spánverjar, Frakkar, Portúgalar eða aðrir sem eru gráðugir veiðimenn. Við verðum að horfa á þetta frá okkar eigin ranni.

Ég man það einhvern tíma fyrir mörgum árum þegar Joseph Luns, framkvæmdastjóri NATO, kom í fyrstu heimsókn sína til Íslands, þá var ég sendur sem blaðamaður Morgunblaðsins að ræða við höfðingjann. Hann hafði engan tíma fyrir svona venjulega blaðamenn á Íslandi og sagði fátt nema klisjur. Á leiðinni í bæinn stoppaði ég við sauðfjárveikivarnahlið í Vogum á Vatnsleysuströnd. Þar var rollukarl á vaktinni, hann hafði nógan tíma. Hann sagði mér ýmislegt sem var bæði fréttnæmt og heimspekilegt.

Ég skrifaði síðan pistilinn um þessa tvo menn, rollukarlinn og Joseph Luns. Ég man að ritstjóri minn, Matthías Johannessen, kom til mín og sagði: Ég vildi hafa skrifað þennan pistil. Það var örugglega ekki út af því sem Joseph Luns sagði heldur því sem rollukarlinn sagði. Það sama gildir um Bjart í Sumarhúsum sem hefur komið þrálátt inn í umræðuna. Hann var vildi líka fara varlega utan girðingarinnar, eins og hann segir í vísunni Stríðið:

Spurt hef ég tíu miljón manns

sé myrtir í gamni utanlands,

sannlega mega þeir súpa hel,

ég syrgi þá ekki, fari þeir vel.

Aftrámóti var annað stríð

í einum grjótkletti forðum tíð,

og það var alt út af einni jurt,

sem óx í skjóli og var slitin burt.

Síðan kemur hnykkurinn, virðulegi forseti: (Forseti hringir.)

Því er mér síðan svo stirt um stef

stæri mig lítt af því sem hef,

því hvað er auður og afl og hús

ef eingin jurt vex í þinni krús?