135. löggjafarþing — 57. fundur,  31. jan. 2008.

Ísland á innri markaði Evrópu.

350. mál
[18:40]
Hlusta

Karl V. Matthíasson (Sf):

Herra forseti. Hér hefur verið rætt á þinginu, hinu háa Alþingi, Evrópusamstarf og víða verið farið. Það hefur verið rætt um hvort Íslendingar eigi að ganga í Evrópusambandið eður ei og menn mæla með og móti og það er nú ágætt. Þessi umræða er í gangi í samfélaginu og ég vona að hún verði það áfram.

Ef til þess kæmi að Íslendingar gengju í Evrópusambandið vona ég að það yrði ekki gert með sama hætti og þegar við gengum í NATO, það var ekki alveg í anda lýðræðis. Þá vildu menn hafa þjóðaratkvæðagreiðslu og að þjóðin fengi að taka afstöðu til þess og það er náttúrlega grundvallaratriði í þessum málum að þjóðin sjálf taki ákvarðanir í sínum eigin málefnum og að hún viti hvað hún er að gera.

Ég ætlaði, herra forseti, svo sem ekkert að ræða þetta. Mig langaði til að koma hérna, ég ætla nú ekki að segja með „skýrslu“ eða neitt svoleiðis, en mig langar að leggja nokkur orð í belg í tengslum við Vestnorræna ráðið og Evrópusambandið. Vestnorræna ráðið hefur lagt á það áherslu að samfélag þjóðanna taki það alvarlega sem er að gerast í sambandi við hlýnun á norðurhveli jarðar. Vestnorræna ráðið hefur hvatt Evrópusambandið til að koma á fót upplýsingaskrifstofu um málefni norðurskautssvæðisins og að þeirri skrifstofu yrði falið að safna og miðla upplýsingum um norðurskautið innan Evrópusambandsins.

Það er áhyggjuefni að í svo stórri og valdamikilli stofnun sem Evrópusambandið er skuli embættismenn og stjórnmálamenn ekki geta nálgast upplýsingar um ástand og þróun mála á norðurskautinu á einum stað innan stofnunarinnar. Við í Vestnorræna ráðinu höfum því óskað eftir því við framkvæmdastjórn ESB og Evrópuþingið að komið yrði á fót upplýsingaskrifstofu um málefni norðurskautsins. Erindi okkar hefur verið vel tekið og er mér ánægja að upplýsa það hér að vilji er til þess innan Evrópuþingsins og Vestnorræna ráðsins að koma á formlegum samskiptum, þar sem m.a. væri hægt að þróa þessa hugmynd betur.

Mig langaði að nefna þetta í þessari umræðu vegna þess að loftslagsbreytingar munu hafa gífurleg áhrif á atvinnulíf og viðskipti á þessu svæði og við norðurskautssvæðið ef svo fer fram sem horfir því þar eiga sér stað miklar breytingar.