135. löggjafarþing — 57. fundur,  31. jan. 2008.

Ísland á innri markaði Evrópu.

350. mál
[18:50]
Hlusta

Ögmundur Jónasson (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég fagna því að ríkisstjórnin skuli vilja fylgjast með framgangi þjónustutilskipana Evrópusambandsins. Menn hafa verið að togast á um það hvað eigi að heyra undir þessa þjónustutilskipun. Annars vegar hefur verkalýðshreyfingin óskað eftir því að skýrar markalínur yrðu dregnar á milli velferðarþjónustunnar annars vegar og annarra þjónustugeira hins vegar, „Services of Economic Interest“. Það hefur ekki tekist að ná þessu fram. Hins vegar var heilbrigðisgeirinn tekinn undan þessari þjónustutilskipun og það er um hann sem menn deila núna og hafa verið að deila síðustu vikurnar. Spurningar mínar snerust um þennan þátt sérstaklega og ég vék að umræðum um þetta efni m.a. í Noregi og annars staðar. Þessum þætti var skotið á frest og kemur sennilega ekki til framkvæmda fyrr en síðar. Um þetta hafa risið miklar deilur.

Síðan er hitt að þessar tilskipanir eru um margt mjög óljósar. Það sem menn hafa áhyggjur af er að það muni leiða til þess að dómstólar fái aukin völd, aukin áhrif varðandi alla stefnumörkun. Því var það svo þegar þjónustutilskipunin kom út úr þinginu — var það ekki 2006? — þá fögnuðu bæði hægri sinnar og vinstri sinnar. Báðir sáu eitthvað gott í þessum tilskipunum en ætluðu að treysta á dómstóla hvað túlkun snertir. Borgarstjórarnir og verkalýðshreyfingin eru enn mjög gagnrýnin á þá tilskipun sem hefur verið samþykkt og einnig á hitt sem er í burðarliðnum, menn þurfa ekki annað en fara inn á heimasíður verkalýðssamtakanna, hvort sem er „European Trade Union Confederation“ eða EPSU, sem er almannaþjónustan, til að (Forseti hringir.) sannfærast um að þar er mjög hörð gagnrýni á þá skipan mála sem enn er uppi.