yfirtaka ríkisins á Speli ehf. og niðurfelling veggjalds um Hvalfjarðargöng.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni svörin. Hv. þingmaður veit ekki hvort hann hefur sinn flokk á bak við sig í málinu. Hann getur ekki upplýst það. En séu samfylkingarmenn þessarar skoðunar, að þetta gjald beri að afnema og leggja þennan skatt niður og að stöndugur ríkissjóður yfirtaki skuldina og greiði hana upp þá gæti nú verið svo að hér sé kominn meiri hluti fyrir því að samþykkja frumvarp hv. þm. Kristins H. Gunnarssonar. Sjálfstæðisflokkurinn einn gæti orðið þar í minni hluta og barist gegn skattalækkun á fólk og fyrirtæki í Norðvesturkjördæmi með þeim hætti. Ég bið því hv. þingmann að skoða þetta vel.
Alvarlegast í þessari umræðu sem hér hefur komið fram er að sjálfstæðismenn eru í raun að boða það föstum fetum að Vaðlaheiðargöng verði gjaldtöku- og skattagöng. Samgönguráðherra var á móti því alla veganna áður en hann fór inn í ríkisstjórnina. Hvar er hann nú í því máli?
Það langalvarlegasta sem hér hefur komið fram er að ef það hvarflar að ríkisstjórninni að leggja gjald á veginn frá Reykjavík og austur fyrir Selfoss þá væri það algjörlega úr takti. Ég hef áhyggjur eftir þennan dag hvað Sjálfstæðisflokkurinn er að fara í þessu máli.
Ég tel að þessari umræðu sé ekki lokið og áhyggjur mínar eru meiri um þessi mál eftir því sem ég hef hlustað á fleiri sjálfstæðismenn tjá sig hér í dag í þessu máli, því miður. Ég hef kannski enn þá meiri áhyggjur af þeim sem ekki hafa tjáð sig því þar liggur einhver dulúð sem ég átta mig ekki á.