135. löggjafarþing — 63. fundur,  11. feb. 2008.

eftirlit með óréttmætum viðskiptaháttum og gagnsæi markaðarins.

362. mál
[16:28]
Hlusta

Bjarni Benediktsson (S):

Virðulegi forseti. Það frumvarp sem við ræðum hér í dag leiðir ekki til mikillar efnisbreytingar á innlendum rétti á þessu sviði heldur er því, eins og fram kemur í frumvarpinu sjálfu, fyrst og fremst ætlað að samræma innlenda löggjöf að tilskipuninni og þannig að löggjöf annarra aðildarríkja Evrópusambandsins og EES-svæðisins. Það má kannski segja um okkar sérstöðu að þessu leyti til að sá hvati sem er að baki þessu máli innan Evrópusambandsins á að sumu leyti ekki við á Íslandi.

Í fyrsta lagi eru reglur um neytendavernd nokkuð þróaðar hér á landi og hafa verið og það sýnir sig einfaldlega í því að á bls. 7 í frumvarpinu er sú athugasemd gerð að við samningu frumvarpsins sé byggt á því að gildandi lög veiti ekki minni vernd en ákvæði tilskipunarinnar. Það eitt og sér sýnir að við höfum haft hér þó nokkuð þróaða löggjöf á þessu sviði. Að hinu leytinu til á þessi tilskipun kannski minna erindi við okkur en almennt gerist í Evrópusambandinu vegna þess að þau vandamál sem þar er verið að glíma við koma m.a. til af því að þar liggja margir markaðir saman á meðan við erum á ýmsan hátt landfræðilega aðgreind frá innri markaðnum þó að við séum vissulega fullir þátttakendur í honum. Það má því segja að það sé visst fagnaðarefni fyrir okkur að fá þann stimpil með þessu frumvarpi að við höfum einfaldlega haft þó nokkuð þróaða og góða neytendalöggjöf.

Ég vil í örstuttu máli fjalla um þær athugasemdir sem hafa komið fram og varða aðkomu þingsins að málinu og þá fullu samræmingu sem farið er fram á í tilskipuninni. Á síðasta þingi var samþykkt tillaga til þingsályktunar um að aflétta stjórnskipulega fyrirvaranum sem gerður var eftir að sú ákvörðun hafði verið tekin í sameiginlegu EES-nefndinni að bæta þessu við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið. Það hefði, ef allt hefði verið eðlilegt, átt að vera annað tækifæri okkar til þess að taka þessi mál til umfjöllunar hér á þinginu.

Fyrsta tækifærið hefði átt að vera það þegar við höfðum þetta mál til umfjöllunar meðan það var enn á mótunarstigi. Vissulega má halda því fram að áhrif okkar á því stigi séu alltaf takmörkuð en það eru ekki nein ný tíðindi fyrir okkur, það vissum við þegar við gengum inn í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, en við höfum einfaldlega, eins og margoft hefur komið fram í umræðum á þinginu, dregið lappirnar í því að fylgjast nægilega vel með málum og nú hyggjumst við gera bragarbót á því. Þá hefðum við átt að vera meðvituð um það strax á því stigi að til stæði að samþykkja á vettvangi Evrópusambandsins tilskipun um að hafa fulla samræmingu á þessu sviði. Sú umræða hefði síðan í annað sinn getað farið fram hér á þinginu þegar við samþykktum að aflétta stjórnskipulega fyrirvaranum og nú erum við að ræða málið þegar frumvarpið kemur fram.

Ég vil láta við það sitja að halda því fram að langheppilegast væri að lagafrumvarpið sjálft væri tilbúið þegar hinum stjórnskipulega fyrirvara er aflétt. Það á ekki eingöngu við í þessu máli heldur langflestum málum þar sem við höfum tiltölulega þröngan tímaramma til þess að aflétta fyrirvaranum. Það væri langheppilegasta fyrirkomulagið. Ég geri mér grein fyrir því að það kallar á stóraukinn mannafla í Stjórnarráðinu við að setja saman lagafrumvörpin og það setur okkur í töluvert mikla tímapressu en það er langeðlilegasti farvegurinn fyrir þessi mál að þegar við samþykkjum að gangast undir tilskipunina, á þeim tímapunkti, sé okkur hér á þinginu ljóst hvers konar lagabreytingar muni fylgja í kjölfarið.

Þegar ég nú við það að þetta lagafrumvarp kemur fram rifja upp efni þingsályktunartillögunnar eins og hún var borin hér upp fyrir þingið á sínum tíma kemur það augljóslega fram að það var erfitt að átta sig á því hvers konar breytingar við þyrftum að gera en þó var þar að finna ákveðnar vísbendingar og eflaust hægt að finna miklu verri dæmi um það en þetta að við áttum okkur ekki á því hvers konar lagabreytingar við erum að kalla yfir okkur þegar hinum stjórnskipulega fyrirvara er aflétt. Ég ætla því að nota þetta tækifæri til þess að taka undir með þeim sem hafa vakið athygli á þessum ferli málanna áður en þau koma hingað til okkar og að öðru leyti er ekki margt um þetta lagafrumvarp að segja annað en það að maður treystir því að hér hafi verið vel til verks vandað og mér sýnist það líka á frumvarpinu sjálfu. Við höfum í sjálfu sér efnislega afskaplega lítið um þetta að segja, ekki er verið að innleiða margar nýjar reglur, það er verið að greina að málaflokka til þess að tryggja að enginn vafi leiki á því að tilskipunin sé innleidd með fullnægjandi hætti og það standist allt saman skoðun. En efnislega á þessu sviði höfum við framselt lagasetningarvaldið og ég get ekki annað en tekið undir með hv. þm. Steingrími J. Sigfússyni að það er dálítið sérstakt að taka þátt í því ferli að setja stimpilinn á slík mál þegar þau rata hingað inn á þingið.

Það er dálítið tæknileg umræða hvort við höfum framselt lagasetningarvaldið eða ekki. Ég kemst svona að orði hér vegna þess að farið er fram á fulla samræmingu við tilskipunina. Auðvitað höfum við formlega séð ekki framselt lagasetningarvaldið þegar við gerum hinn stjórnskipulega fyrirvara og við tökum sérstaka ákvörðun um það hér á þinginu. En ef við horfum á reynsluna sem er af samningnum er augljóst að aldrei hefur komið upp eitt einasta tilvik við framkvæmd EES-samningsins þar sem þjóðþing aðildarríkis EFTA-ríkjanna hefur kosið að hafna því að aflétta stjórnskipulega fyrirvaranum, það hefur aldrei gerst. Í því ljósi er ekki hægt að segja neitt annað en að mikill vafi leiki á því hvort lögfræðiálitið frá sínum tíma standist í ljósi nútímans, í ljósi þess hvernig framkvæmd samningsins hefur orðið. Allt þetta ætti að verða okkur til umhugsunar varðandi framkvæmd samningsins í heild sinni, hvernig þingið getur haft meiri aðkomu að málum, hvernig þingið getur verið betur á verðinum á fyrri stigum og ég ítreka allt það sem ég hef áður sagt í því efni um málin á mótunarstigi.