samningar um opinber verkefni.
Hæstv. forseti. Ég hef að sjálfsögðu fullan skilning á því að stjórnmálamenn hafi þörf fyrir að vekja athygli á þeim góðu verkum sem þeir margir hverjir koma í verk. En ég hef enga samúð með þeirri hégómagirnd ráðamanna að kalla ævinlega til fjölmiðla þegar þeir eru að framfylgja lögum, eins og kom fram í játningu — ég vil segja játningu — hv. þm. Sivjar Friðleifsdóttur hér áðan. Ég verð að segja að mér fannst sú ræða nokkuð áhrifamikil þegar hún viðurkenndi það sem fyrrverandi ráðherra að hún hefði í hugsunarleysi farið inn í einhvern kúltúr sem væri búið að innleiða af stjórnarherrunum.
Auðvitað eru forsætisráðherrar þessara ríkisstjórna sem við höfum haft hér undanfarin ár og fjármálaráðherrar kannski fyrst og fremst ábyrgir fyrir þessum kúltúr, fyrir þessum sið. Þessi siður hefur verið innleiddur og umboðsmaður gerir athugasemd við hann og segir að þetta sé viðskiptavæðing, að þetta séu aðferðir viðskiptalífsins og ég er sammála umboðsmanni í því. Ég tel þess vegna að það sé nauðsynlegt að við höfum ákveðinn vara á og ég tel að hv. formaður fjárlaganefndar hafi sagt mér og okkur hér að fjárlaganefnd ætli sér að skoða þessi mál og að fjárlaganefnd sé sama sinnis og ég hvað þetta varðar að hér séu menn kannski komnir út á hálan ís og út á brautir sem séu komnar út fyrir öll mörk svona eðlilegra stjórnsýsluhátta enda segir umboðsmaður Alþingis í skýrslunni sinni að þetta heyri ekki undir vandaða stjórnsýslu. Við þurfum að tryggja ákveðna þætti sem umboðsmaður Alþingis getur um, til dæmis réttaröryggi borgaranna og það er ekki verið að gera það með því móti eða þeim sið sem hér hefur verið innleiddur.
Auðvitað kemur það af sjálfu sér að það á að fara að lögum og mér þykir það óþarfi af hæstv. forsætisráðherra að taka það fram eða vitna akkúrat í þá setningu í skýrslu umboðsmanns. Það skiptir hins vegar verulegu máli að vönduð vinnubrögð (Forseti hringir.) séu viðhöfð og að við séum ekki að gera samninga um lögboðin verkefni þó að ráðherrarnir (Forseti hringir.) hafi mikla lyst á því að vera í fjölmiðlum sem oftast.