135. löggjafarþing — 65. fundur,  19. feb. 2008.

varamaður tekur þingsæti.

[13:33]
Hlusta

Forseti (Sturla Böðvarsson):

Borist hefur bréf frá 10. þm. Norðaust., Höskuldi Þórhallssyni, um að hann verði í feðraorlofi næstu fjórar vikur og sæki því ekki þingfundi. Huld Aðalbjarnardóttir skólastjóri, 1. varamaður flokksins í Norðaust., tekur sæti hans í dag. Kjörbréf Huldar Aðalbjarnardóttur hefur þegar verið rannsakað og samþykkt. Hún hefur ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því að undirrita drengskaparheit að stjórnarskránni skv. 2. gr. þingskapa.

 

[Huld Aðalbjarnardóttir, 10. þm. Norðaust., undirritaði drengskaparheit um að halda stjórnarskrána.]