vinna barna og unglinga.
Virðulegi forseti. Ég er alveg sammála innganginum í ræðu hv. fyrirspyrjanda, það þarf að gæta þess að börn beri ekki óeðlilega ábyrgð við vinnu, að störf sem þau stunda séu við þeirra hæfi og að farið sé að þeim tíma sem settur er upp og viðmiðunum sem notuð eru um vinnu barna. Ég vil þakka hv. fyrirspyrjanda fyrir að vekja athygli mína á þessu ef það er rétt, sem hv. fyrirspyrjandi nefnir hér, að brögð séu að því að bæði í þjónustu- og verslunarstörfum séu börn látin vinna vinnu sem þau ættu ekki að gera samkvæmt lögum og (Forseti hringir.) reglum sem í gildi eru. Af þessu tilefni mun ég sérstaklega láta skoða þetta.