framtíðarstuðningur stjórnvalda við hefðbundinn landbúnað.
Frú forseti. Ég vek hér máls á stöðu landbúnaðarins og tel mjög brýnt að hið háa Alþingi fjalli um þá atvinnugrein. Þó að hún sé ekki lengur veigamikil í þjóðarbúinu eða í hagkerfinu er hún engu að síður mikilvæg fyrir okkur og á eftir að verða enn mikilvægari. Það eru blikur á lofti í landbúnaðarmálum í heiminum vegna þeirrar stöðu sem komin er upp með hækkandi afurðaverði, með aukinni eftirspurn eftir landbúnaðarlandi og landbúnaðarvörum til nota þar sem þær hafa ekki verið áður eins og eldsneyti, og svo mætti áfram telja.
Við þessar aðstæður standa íslenskir bændur á krossgötum þar sem að þeim er rétt eitt og annað og margt mjög freistandi. Í áratugi hafa íslensk stjórnvöld staðið dyggilega vörð um að þannig sé búið að innlendri landbúnaðarframleiðslu að hún lifi og dafni og þróist. Alla tíð hafa þó verið til þau öfl í pólitík sem talið hafa að í rauninni sé gagnslaust að halda uppi hefðbundinni landbúnaðarframleiðslu í köldu landi eins og okkar og hafa viljað fara öðruvísi að. Nær væri að galopna hér allar gáttir fyrir innflutningi og hætta öllum innanlandsstuðningi.
Ég segi þetta núna því að ég tel að þessi ógn steðji enn að okkur þó að íslenskur landbúnaður verði brátt fullkomlega samkeppnisfær á alþjóðamarkaði. Það er þó ekki enn staðreynd og ræður þar mestu að á öllum Vesturlöndum nýtur hefðbundinn landbúnaður ríkisstyrkja og margháttaðrar verndar og fyrirgreiðslu. Þess vegna er það mér nokkurt áhyggjuefni að sjá þess nú ýmis merki að stjórnvöld hyggi á breytingar. Fyrir fáeinum vikum ræddi einn af fráfarandi þingmönnum Sjálfstæðisflokks þá hugmynd sína að bændur yrðu keyptir út í eitt skipti fyrir öll með allan stuðning við mjólkurframleiðslu. Er þá komið fyrir bóndanum eins og þeim sem sat á krossgötum á nýársnótt. Hann varðist lengi vel fégráðugum álfum sem reyndu að tæla hann en lét loks freistast þegar hangiflotið var rétt að honum. Þá sagði bóndi: „Sjaldan hef ég flotinu neitað.“ Það er ansi erfitt fyrir bændur að standast þá áraun ef hverjum og einum verða réttir tugir milljóna og allur framleiðslustuðningurinn þannig greiddur út í einu lagi. Er þá hætt við að sú framleiðsla leggist að mestu leyti af eftir það.
Annað sem við heyrum af núna eru hugmyndir um að lækka innlent matvælaverð með enn frekari lækkun á tollum og aðflutningsgjöldum. Það er alltaf fagnaðarefni að matvælaverð sé lækkað og ég er mikill baráttumaður fyrir því að svo verði. Ég tel einmitt og hef lengi talið að það orki mjög tvímælis að innheimta matarskatt á Íslandi eins hátt og verðlag er hér á matvöru. Ráðstafanir stjórnvalda í kjaramálum nú lúta sérstaklega að verðlagi á innfluttum matvörum en það er mikill verðþrýstingur á innlendu framleiðsluna. Sú innflutta mun sem sagt lækka í verði en það er allt sem bendir til að innlenda framleiðslan muni hækka verulega á næstu mánuðum og missirum. Það er í rauninni útilokað annað en að þær miklu verðhækkanir á áburði og fóðri sem ég þarf ekki að rekja hér í smáatriðum — menn tala um 80% hækkun á áburðarverði — muni velta út í verðlagið ef ekki verður gripið þar til sérstakra ráðstafana sem erfitt er að segja um hvernig eigi að gera. Það er þó afleitt ef stjórnvöld vinna gegn bændum á sama tíma með því að gera samkeppnisstöðu þeirra við innflutninginn enn þá erfiðari.
Þess vegna held ég að mikilvægt sé að vita hvaða stefnu núverandi ríkisstjórn ætlar að taka í þessum málum, hvort hún muni áfram fylgja þeim meginlínum sem verið hafa hér í stjórnmálum og í ríkisstjórnarsamstarfi með Framsóknarflokki síðastliðin tólf ár — lengst af lýðveldistímanum hafa stjórnvöld fylgt þeirri stefnu að styðja innlenda matvælaframleiðslu (Forseti hringir.) — eða hvort kúrsinn verði tekinn á kratatillögu og tillögu Vilhjálms Egilssonar.