135. löggjafarþing — 65. fundur,  19. feb. 2008.

stofnun háskólaseturs á Selfossi.

343. mál
[18:48]
Hlusta

Flm. (Jón Bjarnason) (Vg):

Frú forseti. Ég mæli fyrir tillögu til þingsályktunar um stofnun háskólaseturs á Selfossi. Flutningsmenn auk mín eru hv. þingmenn Atli Gíslason, Kolbrún Halldórsdóttir og Steinunn Þóra Árnadóttir. Tillögugreinin hljóðar svo:

„Alþingi ályktar að fela menntamálaráðherra að hefja undirbúning að stofnun háskólaseturs á Selfossi í samvinnu við heimamenn og háskóla- og rannsóknastofnanir í héraði. Ráðherra geri Alþingi grein fyrir undirbúningsstarfinu og tillögum sínum um uppbyggingu háskólanáms á Selfossi fyrir 1. september 2008.“

Í greinargerð með tillögunni segir svo, frú forseti:

Tillaga þessi var áður lögð fram á 132. og 133. löggjafarþingi en náði ekki fram að ganga.

Eitt brýnasta mál landsbyggðarinnar er efling menntastofnana og rannsóknasetra sem víðast um landið. Reynslan hefur sýnt fram á kosti þess að heimamenn stjórni slíkri starfsemi að sem mestu leyti sjálfir og byggi þá á tækniþekkingu, menningu, atvinnulífi og auðlindum hvers héraðs um sig. Nægir í því sambandi að horfa til háskólanna á Hvanneyri, Bifröst og Hólum sem hafa með sjálfstæði sínu, frumkvæði og sveigjanleika staðist fyllilega þær kröfur sem gerðar eru til háskóla. Fáir efast heldur um það nú orðið að sjálfstæði Háskólans á Akureyri var ein meginforsenda þess að hann næði að vaxa og dafna. Hins vegar er samstarf sjálfstæðra menntastofnana ávallt af hinu góða, hvort heldur er samstarf við skóla í öðrum landshlutum eða erlendis.

Blómlegt mannlíf byggist á menntun, fjölbreyttri atvinnu og góðri almannaþjónustu. Enginn einn þessara þátta nægir. Íbúum á Suðurlandi hefur fjölgað umtalsvert á umliðnum árum og útlit er fyrir áframhaldandi fjölgun íbúa á næstu árum. Afar mikilvægt er því að auka fjölbreytni í atvinnulífi á svæðinu, efla menntunarmöguleika og almenna þjónustu við íbúana.

Sunnlendingar hafa ekki fengið sams konar framlög til uppbyggingar og miðlunar háskólanáms og Vestfirðir, Norðurland og Austurland á umliðnum árum þótt við vildum reyndar sjá miklu hærra fjármagn veitt eins og til háskólasetranna á Ísafirði, Egilsstöðum og Húsavík svo dæmi séu nefnd. Eins og víðar á landsbyggðinni er lægra hlutfall háskólamenntaðra í landshlutanum en á höfuðborgarsvæðinu.

Á aðalfundi Sambands sunnlenskra sveitarfélaga, SASS, dagana 25. og 26. nóvember 2005 var samþykkt ályktun þar sem áhersla er lögð á að efling háskólamenntunar og bætt aðgengi almennings að henni sé eitt brýnasta hagsmunamál landshlutans. Ákveðið var á fundinum að 80 millj. kr., sem sveitarfélög á Suðurlandi eiga í sjóði hjá atvinnuþróunarsjóði og ætlunin var að setja í sérstakan sjóð til eflingar atvinnulífi á svæðinu, yrði varið til að treysta undirstöður háskólanáms í landshlutanum. Á aðalfundinum var jafnframt skorað á ríkisvaldið að koma myndarlega að uppbyggingu háskólanáms á Suðurlandi enda er málaflokkurinn á verksviði þess samkvæmt lögum.

Sú ákvörðun sveitarfélaganna í landshlutanum að verja 80 millj. kr. til uppbyggingar háskólanáms á svæðinu sýnir áhuga þeirra á málinu. Í framhaldinu er mikilvægt að ríkisvaldið komi að þessari uppbyggingu með framlögum til jafns við aðra landshluta. Á ársþingi SASS í nóvember 2007 voru þessar óskir áréttaðar, svo sem sjá má í fylgiskjölum II og III.

Þótt ekki sé orðið ýkja langt að fara milli Selfoss og Reykjavíkur, þar sem þegar eru starfræktir háskólar, má ætla að aðstæður fólks til að sækja slíkt nám þangað séu alls ekki alltaf nógu góðar, auk þess sem benda má á að fjarlægðir frá Reykjavík í uppsveitir Árnessýslu og austur í Skaftafellssýslu eru alls ekki boðlegar til daglegs aksturs fram og til baka. Það gefur augaleið að háskólasetur, sem mundi færa námið til fólksins, gerbreytti aðstæðum fólks til að sækja sér frekari menntun.

Ekki er vafi á því að stofnun háskólaseturs á Selfossi yrði kærkomin viðbót við Fjölbrautaskóla Suðurlands sem þar er fyrir. Slíkar menntastofnanir mundu styðja vel hvor við aðra, og ekki bara á sviði menntunar þótt sú samvinna yrði hvað dýrmætust.

Á meðal íbúa á Suðurlandi er mikil eftirspurn eftir háskólamenntun í heimabyggð. Skráður íbúafjöldi á þessu svæði 1. desember 2007 var 23.478 manns. Háskólasetur á Selfossi mundi styrkja þessa heildarmynd menntunar og bæta enn frekar búsetuskilyrðin á svæðinu og koma þar með til móts við eindregnar óskir íbúanna. Því er lagt til að menntamálaráðherra skipi nú þegar nefnd með heimamönnum sem vinni tillögur að stofnun háskólaseturs á Selfossi og að hún skili áliti fyrir 1. september 2008 svo að hægt sé að hafa hliðsjón af tillögum hennar við gerð fjárlagafrumvarps fyrir árið 2009.

Frú forseti. Fylgiskjal I með þessari þingsályktunartillögu er grein eftir Atla Gíslason, núverandi þingmann Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs í Suðurlandskjördæmi og Ölmu Lísu Jóhannsdóttur sem skipaði 2. sæti við framboð Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs við síðustu alþingiskosningar sem ég vil leyfa mér að vitna til, frú forseti. Þar eru áréttuð þau sjónarmið sem ég hef rakið og hvatt til þess að tillaga þessi, þau áform sem hér eru sett fram, fái ítarlega umfjöllun og meðferð bæði á Alþingi og hjá heimamönnum á Suðurlandi.

Ég vísaði áðan til ályktunar ársþings Sambands sunnlenskra sveitarfélaga sem haldið var á Kirkjubæjarklaustri 1. og 2. nóvember 2007 en þar segir:

Ársþing SASS 2007 fagnar þeim skrefum sem náðst hafa í undirbúningi stofnunar Háskólafélags Suðurlands og þeirri ábyrgð sem sunnlensk sveitarfélög hafa axlað vegna uppbyggingar háskólastarfs á Suðurlandi. Stjórnvöld eru hvött til beinnar þátttöku í eflingu háskólamenntunar á svæðinu, svo sem með aðkomu menntamálayfirvalda og fjárveitingavaldsins. Minnt er á mikilvægi háskólastarfs í atvinnu- og búsetulegu tilliti.

Samtök sveitarfélaga á svæðinu þrýsta því á, óska eftir og biðja um beina þátttöku og aðild hins opinbera að þessu máli en þau hafa að eigin frumkvæði einnig hafið undirbúning og skoðun á þeim möguleikum sem þar eru fyrir hendi.

Ég get einnig vísað til fylgiskjals III með þessari tillögu en það er skýrsla stjórnar Sambands sunnlenskra sveitarfélaga fyrir starfsárin 2007 og 2007 sem einnig var kynnt á ársþingi SASS um menntamál og Háskólafélag Suðurlands. Þar eru þessi mál enn frekar ítrekuð en þar segir:

Eitt af megináherslumálum í vaxtarsamningi fyrir Suðurland eru menntamál og þá einkum efling háskólanáms. Nú eru liðin tvö ár síðan samþykkt var á aðalfundi SASS að verja þeim fjármunum sem til voru í Atvinnuþróunarsjóði Suðurlands, þegar lánastarfsemi var þar aflögð, til uppbyggingar háskólanáms. Undirbúningur hefur staðið yfir undanfarið ár og nú hefur verið stofnað hlutafélagið Háskólafélag Suðurlands, sem standa mun fyrir ýmiss konar háskólastarfsemi á Suðurlandi. Stefnt er að samstarfsneti ýmissa aðila, kennsluráðgjafa af hálfu ríkisins, sjálfstæðra rannsóknarstofnana á Suðurlandi, símenntunarmiðstöðva og erlendra háskóla í náinni samvinnu við atvinnulífið. Nauðsynlegt er að ríkisvaldið komi með sambærilegum hætti að eflingu háskólanáms á Suðurlandi og í öðrum landshlutum.

Heimamenn á Suðurlandi vítt og breitt hafa reynt að finna leiðir innan sinna vébanda til að þoka þessum málum áfram en kalla á þátttöku af hálfu ríkisvaldsins til að geta ýtt málunum enn frekar.

Í stefnu Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs um mennta- og menningarmál sem samþykkt var 27. mars 2007 segir, með leyfi forseta:

„Háskólanám um land allt. Stuðla verður að uppbyggingu fræðasetra og námsvera um land allt þannig að landsmenn allir geti átt kost á því að stunda fjarnám á háskólastigi. Miklu skiptir að slíkt fjarnám sé félagslega uppbyggt en ekki velt yfir á hvern einstakling sem stundi það í sínu horni. Tryggja þarf rekstrargrundvöll símenntunarmiðstöðva. Símenntunarmiðstöðvar landsbyggðarinnar eru oft eini aðgengilegi fræðsluaðilinn í dreifðum byggðum landsins og því þarf að styrkja stoðir þeirra þannig að nám í heimabyggð fyrir fullorðna verði raunverulegur og aðgengilegur kostur í fullorðinsfræðslu og hvers konar endur- og símenntun. Einnig þarf að tryggja framboð á náms- og starfsráðgjöf hjá sömu aðilum þannig að hægt verði að bjóða upp á slíka þjónustu, m.a. í samstarfi við atvinnurekendur.“

Eins og hér hefur komið fram í umræðum fyrr í dag, frú forseti, er eitt af megináherslumálum Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs efling menntunar á öllum skólastigum um allt land. Í því skyni og sem hluti af þeirri heildarsýn Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs er þessi tillaga flutt sem gengur beint undir að styrkja og styðja þá stefnu, markmið og samþykktir sem gerðar hafa verið í ört vaxandi samfélagi á Suðurlandi. Háskóli og háskólamenntun er orðinn hluti af hinu daglega lífi í samfélögum og það er svo sannarlega kominn tími til að á þessum málum sé tekið með Sunnlendingum. Tillaga um stofnun háskólaseturs gæti síðan, að mínu viti, þróast upp í sjálfstæðan háskóla á Selfossi. Brýnt er að sú vinna fari nú þegar í gang og að ríkisvaldið komi hispurslaust og óskorað að henni.

Frú forseti. Þegar umræðu er lokið um þessa tillögu til þingsályktunar um stofnun háskólaseturs á Selfossi sem við þingmenn Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs flytjum þá legg ég til að henni verði vísað til hv. menntamálanefndar og vona að hún fái þar skjóta og góða afgreiðslu og geti komið inn í þingið síðar í vetur til endanlegrar samþykktar og afgreiðslu.