135. löggjafarþing — 66. fundur,  20. feb. 2008.

hækkandi áburðarverð og framleiðsla köfnunarefnisáburðar.

354. mál
[14:08]
Hlusta

Bjarni Harðarson (F):

Herra forseti. Varðandi það mál sem við ræðum hérna núna, áburðarverðshækkunina sem tengist umræðu um stöðu landbúnaðar, vil ég enn leggja áherslu á það að stjórnvöld hafa hér möguleika á ákveðinni aðkomu og það er mjög brýnt að þau noti hana. Áburðarverðshækkunin nú mun tvímælalaust leiða til mikils þrýstings á verðhækkanir. Varðandi mjólkina hefur ríkt verðstöðvun, þá hafa menn ekki tekið verðhækkanir út á undanförnum missirum eins og eðlilegt væri þannig að líkurnar á því að þetta geti gengið fram án þess að mjólkurverð hækki eru í rauninni engar.

Stjórnvöld hafa boðað að verja ákveðnum fjármunum til að lækka matvælaverð í tengslum við kjarasamninga. Ég ítreka hér áskorun um að þeim peningum verði varið til lækkunar á innlendri vöru jafnt sem þá hinni innfluttu með t.d. breytingum á virðisaukakerfinu (Forseti hringir.) sem hæglega er hægt að ráðast í núna (Forseti hringir.) þegar þensluskeiði er að mestu lokið.