135. löggjafarþing — 66. fundur,  20. feb. 2008.

flug milli Vestmannaeyja og lands.

355. mál
[14:31]
Hlusta

Fyrirspyrjandi (Árni Johnsen) (S):

Herra forseti. Mig langar að bera fram fyrirspurn til samgönguráðherra um flug milli lands og Eyja, í fjórum liðum.

Eru mörg dæmi um að Flugfélag Vestmannaeyja hafi flogið á milli lands og Eyja á sl. sex mánuðum þegar Flugfélag Íslands hefur ekki flogið?

Þetta er spurning sem ég dreg saman í þessa veru og óska svars hjá samgönguráðherra um þetta.