líffæragjafar.
Virðulegi forseti. Ég vil inna hæstv. heilbrigðisráðherra eftir því hve margir svokallaðir líffæragjafar eru hér á landi miðað við líffæragjafaskrá sem maður skyldi ætla að haldin væri í landinu af því að landlæknisembættið gefur út líffæragjafakort. Ég vil líka spyrja um lagalega stöðu þessara korta.
Þörfin fyrir líffæragjafir mun fara vaxandi, allar tölur sýna fram á það. Við vitum að um 40% þeirra sem beðnir eru um að gefa líffæri úr nýlátnum einstaklingum, aðstandendum sínum, neita því og hefur sú neitun víst færst í vöxt hjá aðstandendum. Það er þörf á úrbótum á löggjöf um líffæragjafir. Við vitum að bæta þarf réttindi þeirra sem gefa líffæri. Sumir þeirra njóta ekki þeirra réttinda að fá t.d. greitt kaup sem þeir missa á meðan þeir eru frá vegna líffæragjafar og það höfum við rætt hér nýlega. Í þessari umræðu hefur komið fram að landlæknisembættið gefur út líffæragjafakort sem mér skilst að hafi enga lagalega stöðu, þ.e. að þótt viðkomandi aðili hafi samþykkt að hann vilji gefa líffæri sín, falli hann frá skyndilega, geti aðstandandi eða aðstandendur neitað. Líffæragjafakortin eru lítil kort á stærð við kreditkort og handhægt að hafa þau við höndina en það er auðvitað algerlega marklaust ef aðstandendur geta svo hunsað yfirlýstan vilja hins látna um að gefa líffæri sín til að aðstoða aðra sem þurfa á þeim að halda.
Mér finnst ótækt að hafa þetta svona, virðulegur forseti, og mér finnst líka ótækt að ekki sé til nein skrá yfir líffæragjafa. Ég vil þess vegna inna hæstv. heilbrigðisráðherra eftir því hvort það komi ekki til greina að laga þessa stöðu þannig að það sé algerlega skýrt hverjir geti hugsað sér og vilji gefa líffæri og að til sé skrá sem hægt er að grípa til til að athuga hvort viðkomandi sé skráður eða ekki varðandi það að gefa líffæri. Ég tel að það gæti verið mjög snjallt að tengja slíka skráningu við útgáfu ökuskírteina og kæmi jafnvel fram í ökuskírteininu af því að heppilegir líffæragjafar eru oft og tíðum þeir sem falla frá í bílslysum.
Það er mjög æskilegt að aðstandendur viti hug hins látna fyrir fram og þess vegna tel ég að við þurfum að gera átak til að koma þessum málum í skikkanlegt horf. Við erum heppin að því leyti að hér er hátt hlutfall lifandi líffæragjafa, þeir eru í kringum 70% hér á landi sem er mjög gott, en það þarf að bæta úr varðandi látna líffæragjafa.