raforkumálefni.
Frú forseti. Ég legg hér fram skýrslu um raforkumálefni sem er 311. mál þingsins á þingskjali 405. Það er skylda mín sem iðnaðarráðherra að leggja slíka skýrslu fyrir Alþingi á tveggja ára fresti.
Það er líka tekið skýrt fram í lögum hvaða þætti beri að fjalla um í skýrslunni. Þar er m.a. nefnt að þar eigi að sýna yfirlit yfir sölu og notkun raforku síðastliðin fjögur ár og sömuleiðis þörf fyrir raforku. Jafnframt á að reifa líklega þróun til lengri tíma á grundvelli raforkuspár og sömuleiðis áætlana um orkufrekan iðnað. Það kemur því skýrt fram í þeim fyrirmælum sem ég sem iðnaðarráðherra hef, að því er varðar þessa skýrslu, að sýna á öll þau spil sem varða stóriðju. Það er þess vegna sem ég hef ekkert undan dregið. Ég gerði þetta út af orðum hv. þm. Steingríms J. Sigfússonar hérna áðan. Ég hef sýnt alla þá hugsanlegu möguleika sem komið hafa til tals með formlegum hætti við stofnanir ríkisins, það er allt saman hér að finna.
Sömuleiðis er það umfjöllunarefni í skýrslunni að ræða á rannsóknir á orkulindum og undirbúning til orkuvinnslu. Raforkuvinnslu með hliðsjón af raforkuþörf og ekki síst málefni sem við höfum margoft rætt hér, ekki síst ég og hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon og Ólöf Nordal, sem er nauðsyn á styrkingu flutningskerfisins í samræmi við aukna raforkuþörf.
Í staðinn fyrir að hlaupa á þessum köflum og reyna að lýsa innihaldi þeirra tel ég að hv. þingmenn geti í sjálfu sér orðið sér úti um þær upplýsingar sem þar eru, ég ætla ekki beinlínis að mata þá með þeim. Mig langar að nota þann tíma sem ég hef til þess að drepa á þau helstu atriði sem vekja eftirtekt mína og áhuga og sem ég held að þörf sé á að þingheimur ræði við framkvæmdarvaldið.
Eins og við munum var samþykkt raforkulaganna frá 2003 giska umdeild. Helsta markmið þeirra laga eða breytinga sem í þeim lögum var að finna var að skapa skilyrði fyrir aukna samkeppni á raforkumarkaði. Það átti vitaskuld að leiða til betri kjara fyrir neytendur. Í því skyni var t.d. ráðist í fjárhagslega aðgreiningu samkeppnisrekstrar og sérleyfisrekstrar. Milli áranna 2003 og 2006 var raforkumarkaðurinn síðan opnaður fyrir alla notendur þannig að eftir 2006 gátu í reynd allir, fyrirtæki og einstaklingar, valið sér raforkusala.
Það má síðan velta því fyrir sér hvaða möguleika við höfum, þ.e. ríkið og eftirlitsstofnanir þess, til þess að fylgjast með samkeppninni og reyna að meta hversu mikil samkeppnin er raunverulega. Eina aðferðin sem við höfum er í reynd að fylgjast með fjölda þeirra notenda sem skipta árlega um sölufyrirtæki.
Þessi breyting á lögunum er ung. Það er margt sem bendir til þess að eftir því sem tíminn líður muni fleiri nota sér samkeppnina. Ein af þeim staðreyndum sem liggur fyrir er að það eru í reynd sárafáir sem notfæra enn þá sér þessa samkeppni. Samkvæmt upplýsingum Netorku skiptu ekki nema rétt um 600 notendur eða 0,35% allra notenda um sölufyrirtæki á árinu 2006. Til samanburðar má geta þess að fimm sinnum fleiri eða 1,5% skiptu um orkusala í Danmörku á sama tíma. Þar hafa allir neytendur getað skipt um sölufyrirtæki síðan árið 2003.
Það er alveg sama þótt maður fari yfir tölur frá hinum Norðurlöndunum, hlutföllin eru alls staðar þannig að Íslendingar eru þar langt á eftir. Því má draga þá ályktun — ég geri það að minnsta kosti — að samkeppnin á markaðnum sé ekki mjög virk. Ég er þeirrar skoðunar að æskilegt sé fyrir íslenska neytendur að auka þessa samkeppni.
Eitt af því sem við höfum verið að beita okkur fyrir er að skoða ábendingar Samkeppniseftirlitsins, bæði hér og á hinum Norðurlöndunum. Samkeppniseftirlitið hefur bent á að raforkusmásalar séu of fáir hér á Íslandi og það leiði til þess að tiltölulega lítill hluti neytenda skiptir um smásala. Einnig er bent á, sem við höfum svo sem rætt hér áður, að hlutdeild stærsta framleiðandans í framleiðslu á raforku er ákaflega há.
Það hefur líka verið bent á að nauðsynlegt sé að skilja frekar á milli sérleyfisþáttar og samkeppnisrekstrar og það er eitt af því sem þessi ríkisstjórn hefur á sinni könnu. Sömuleiðis er ég þeirrar skoðunar, og hef tekið undir þann þátt í gagnrýni bæði norræna og íslenska samkeppniseftirlitsins, að auka þurfi verulega nákvæmni í orkumælingum, t.d. með því að notfæra sér tæknina til þess að senda reglulega upplýsingar um orkunotkun og kostnað, þ.e. að taka upp rauntímamælingar á hvoru tveggja. Það er skemmst frá því að segja að það hefur ekki fallið í verulega góðan jarðveg hjá orkufyrirtækjunum sem telja það leið til aukinnar fyrirhafnar og meiri kostnaðar.
Ég tel sem sagt að stjórnvöld hafi nokkrar leiðir til þess að grípa til úrbóta og auka samkeppni. Sumt af því kemur fram í frumvarpi til nýrra orkulaga sem við ræðum vonandi síðar í vikunni. Breytingarnar sem þar eru ættu í senn að leiða til meiri fjölbreytni í verði á raforku eftir aðstæðum hverju sinni og líka að auka verðvitund neytenda. Eitt af því sem skiptir mestu máli er að auka verðvitund neytenda. Þær hugmyndir sem ég hef sett fram, m.a. í grein í Neytendablaðinu um þessar nýjungar í tækni, eiga að stuðla að því.
Það er alveg ljóst að við sem alþingismenn, að minnsta kosti sá hluti okkar sem auka vill samkeppni vegna þess að við teljum að það leiði til bættra kjara fyrir neytendur, þurfum að skoða kerfið eins og það er núna til þess að finna betri leiðir til þess að auka samkeppnina.
Frú forseti. Ég ræddi það í upphafi tölu minnar að í vetur hefðum við þingmenn rætt töluvert um nauðsyn þess að byggja upp byggðalínuna. Það var ekki síst hv. þm. Ólöf Nordal sem benti á þann möguleika eða það kom upp sá möguleiki í orðræðu okkar hérna að ódýrasta virkjunarframkvæmdin á Íslandi fælist hugsanlega í því að endurbæta og byggja upp flutningskerfið. Sumir halda því jafnvel fram að með þeirri aðgerð væri hægt að ná sem svaraði ígildi meðalvirkjunar út úr kerfinu. Það felst í því að fjárfestingin sem er að finna í virkjunum er ekki að fullu leyti nýtt vegna flöskuhálsa í kerfinu og vegna flutningstakmarkana.
En síðan er líka nauðsynlegt að við horfum til þeirrar staðreyndar sem hefur komið fram í skýrslu frá einni af undirstofnunum mínum sem bendir til þess að á næstu áratugum muni afrennsli frá jöklum vegna hlýnunar aukast um 10%. Þetta er eitt af því sem menn þurfa auðvitað að máta við framtíðaráform um stórverkefni í raforkukerfinu öllu saman. Mig langar að geta þess hér að nú er fram undan að Landsvirkjun ætlar að ráðast í virkjun Búðarháls sem er ef ég man rétt er með 85 megavatta afl á teikniborðinu. Sú virkjun kostar 16 milljarða. Það kostar með öðrum orðum 16 milljarða að verða sér úti um 85 megavött.
Ef ég man rétt kostar uppbygging flutningskerfisins, ef flutningsgetan yrði aukin um 100 megavött, 22 milljarða. Ef við mundum hins vegar auka spennuna enn frekar á kerfinu og bæta það þannig að flutningsgetan ykist um 300 megavött þá kostar það 33 milljarða. Þetta þurfum við að vega saman þegar verið er að máta þetta til framtíðar. Það eru auðvitað alveg gríðarlegir peningar sem þetta kostar. En ef við getum með þessu móti nýtt okkur fjárfestingarnar í virkjununum betur, nýtt okkur breyttar aðstæður sem eru fyrirsjáanlegar af hálfu vísindamanna, þá hljótum við að þurfa að skoða það mjög vel.
Einn jákvæður kostur við þetta er sá að öflun afls með þessum hætti leiðir ekki til neinna spjalla á náttúrunni. Það skiptir auðvitað mjög miklu máli. Það mundi líka skipta miklu máli fyrir orkuöryggi landsmanna, sérstaklega landsbyggðarinnar, ef ráðist yrði í töluvert öfluga styrkingu á landsnetinu.
En ég vil í öllu falli segja það, frú forseti, að ég er þeirrar skoðunar að styrking dreifikerfisins hljóti að vera eitt af helstu stórverkefnum sem við þurfum að ræða, sem bæði löggjafarsamkundan og framkvæmdarvaldið þurfa að hafa samráð um, sem ráðast á í á næsta áratug og áratugum. Ég hef áður í þessum sölum farið góðum orðum um Landsnet og ég er ákaflega hrifinn af því fyrirtæki. Það er oft deilt á Landsnet en ég er þeirrar skoðunar að þar fari menn ákaflega vel að fyrirmælum laganna og þeir séu ákaflega vel meðvitaðir um það hvar uppbyggingar er þörf og þeir gæti líka vel í áformum sínum að þeim fyrirmælum að leggja ekki í of miklar fjárfestingar umfram fyrirsjánlegar þarfir sem vitaskuld kemur þá fram í raforkuverði til landsmanna.
Í þessari skýrslu er að finna yfirlit sem sýnir mjög glöggt þörfina fyrir endurnýjun flutningskerfisins. Það kemur t.d. fram að það er mjög tekið að hníga að aldri, sumar línur eru allar götur síðan 1947, sumar eru eldri en 60 ára, það eru samtals 150 kílómetrar sem eru komnir á þann aldur. Línur á milli 40–50 ára eru eitthvað svipað langar þannig að flutningskerfið er að eldast og margar línur eru að komast á endurnýjunaraldur.
Í töflu 4.3 á blaðsíðu 47 er að finna yfirlit af hálfu Landsnets um slík verkefni þó að þau séu ekki þar reiknuð til kostnaðar. Í þeim kafla er líka að finna þær nýframkvæmdir sem er þegar búið að ákveða og þær eru skýrðar ákaflega vel. Þar kemur fram að fram til ársins 2009 er fyrirhugað að ráðast í nýframkvæmdir sem samtals kosta, eins og segir í skýrslunni, tæplega 2,5 milljarða. Síðan þessi skýrsla var lögð fram hefur verið tekin ákvörðun um það af Landsneti að ráðast í styrkingu flutningskerfisins á milli Blöndu og Rangárvalla í Eyjafirði sem kosta 850 millj. kr. til viðbótar. Fram til ársins 2009 er því fyrirhugað að ráðast í endurbætur sem munu skipta töluvert miklu máli og ekki síst fyrir stöðuna norðan lands.
Þessu til viðbótar eru nokkur atriði sem ég vil sérstaklega vekja athygli þingmanna á varðandi þetta áhugamál mitt, sem er styrking flutningskerfisins. Það er að huga betur að styrkingu á Norðurlandi því fyrir utan þá styrkingu sem ég talaði um áðan, þ.e. milli Blöndu og Rangárvalla í Eyjafirði, þá er ég þeirrar skoðunar að það þurfi líka að huga að því að styrkja spottann eða vegalengdina, línuna frá Eyjafirði til Kröflu. Það er í frumathugun hjá Landsneti núna.
Sömuleiðis tel ég að það yrði mjög til að styrkja orkuöryggi á Norðurlandi og ýta undir framþróun atvinnulífs þar ef Kröflulína 2 yrði styrkt því það skiptir miklu máli fyrir Norðlendinga ef þetta þrennt yrði gert. En það er auðvitað framtíðarmúsík. Þetta mun kosta mjög mikið og verður að haldast í hendur við það sem menn hafa á prjónunum varðandi ýmsar framkvæmdir í landshlutanum.
Það er að lokum eitt sem ég vil sérstaklega vekja eftirtekt þingmanna á. Í kaflanum á bls. 50–54 í skýrslunni er finna upplýsingar um afhendingaröryggið. Þar sést það svart á hvítu, sér í lagi á þeim myndum sem þar er að finna að það er einn landshluti sem sker sig alveg frá öðrum hvað varðar óöryggi um afhendingu orku. Það eru Vestfirðir. Það kemur fram að meðalfjöldi tilvika þar sem er straumlaust hjá notanda og jafnframt er þar sýnd lengd straumleysis, er langmestur á Vestfjörðum. Tíðni straumleysis er, ef ég man rétt, ríflega fjórfalt meiri þar en meðaltalið og tíminn sem er straumlaust hjá Vestfirðingum er um það bil þrefalt lengri. Kerfið er einfaldlega þannig að ef truflanir verða á vesturlínunni, vestan Hrútatungu og að Mjólkárvirkjun, þá slær allt kerfið út. Og það tekur tíma að ræsa varaaflvélar og það tekur líka tíma að setja inn á kerfið þær virkjanir sem leysast út. Ég tel að það þurfi að skoða þetta alveg sérstaklega.
Nú rifjast það upp að stefna þessarar ríkisstjórnar er að landið verði eitt atvinnu- og búsvæði. Það felur í sér að landsmenn eigi að njóta jafnræðis varðandi aðgengi að helstu innviðum samfélagsins eins og samskiptum, fjarskiptum, menntun, en ég hef alltaf hnýtt við þetta að þeir verða líka að njóta jafnræðis gagnvart orkuflutningum. Það er alveg ljóst að ég sem byggðaráðherra er þeirrar skoðunar að Vestfirðir njóti ekki þessa jafnræðis. Um þetta er lítið fjallað í skýrslunni en ég vil hins vegar geta þess að frá því að hún var lögð fram hefur Landsnet gert áætlun um þetta þar sem nokkrir kostir eru reifaðir og ég get ef hv. þingmenn vilja fara frekar út í það skýrt aðeins frá því, það er skýrsla sem væntanlega verður gerð opinber.
Ég tel hins vegar að það sé algjörlega ljóst að eitt af því sem menn þurfa að skoða sérstaklega varðandi Vestfirði eru svæði þar sem línur fara um fjalllendi austan Mjólkárvirkjunar og ég tel, og vísa nú til umræðu sem hér hefur farið fram á hinu háa Alþingi, að menn hljóti að skoða það þótt dýrt sé að leggja þá spotta, sem eru ekkert rosalega langir, í jörðu.
Frú forseti. Eitt af því sem menn hafa deilt um í kjölfar þeirra breytinga sem urðu með raforkulögunum árið 2003 er hvaða áhrif þær breytingar hafa haft á kostnað eða þróun raforkuverðs hér á landi. Í þessari skýrslu kemur fram að raforkuverð til almennra notenda á Íslandi var í upphafi síðasta árs í lægri kantinum miðað við það sem gerist í nágrannalöndunum. Í 2. kafla er farið yfir þróun þessa verðs hér á landi og þar kemur m.a. fram að mestu hækkanir á verði til almennra notenda frá 1. janúar 2005 til 1. janúar 2007 voru hjá Orkubúi Vestfjarða. Þar hækkaði verð í þéttbýli um 2,1% og í dreifbýli um 3,6%. Mestu lækkanirnar á verði til almennra notenda á þessu tímabili voru hjá Rafveitu Reyðarfjarðar, Orkuveitu Húsavíkur, Rarik og Norðurorku. Þar lækkaði raforkuverð um 7–10%. Hjá Orkuveitu Reykjavíkur og Hitaveitu Suðurnesja breyttist raforkuverð til almennra notenda ákaflega lítið á þessu tímabili.
Ég tel, virðulegi forseti, að þetta séu mjög jákvæðar upplýsingar um það með hvaða hætti þessi fyrirtæki hafa getað staðið að framleiðslu sinni og afhendingu orku því á sama tíma vitum við það auðvitað að vísitala verðlags hefur aukist þannig að þetta sýnir mér a.m.k., að þessi fyrirtæki eru ákaflega vel rekin. Sömu þróun sjáum við þegar við skoðum verð á raforku til þeirra sem kaupa í meira magni til aflmældra notenda. Það hafði lækkað töluvert frá árinu 1991 til 2005 miðað við leiðréttingu á grundvelli neysluverðs vísitölu. Það má sjá á blaðsíðu 64 í töflu II að verð til slíkra notenda lækkaði almennt séð hjá Rarik og Rafveitu Reyðarfjarðar. Hjá Norðurorku stóð það í stað eða lækkaði lítils háttar. En hjá Orkuveitu Reykjavíkur lækkaði verðið hjá minni notendum talsvert eða á fimmta prósent meðan það hækkaði að vísu svolítið, um 2,1%, hjá þeim stærri. Hjá Orkubúi Vestfjarða, Hitaveitu Húsavíkur og Hitaveitu Suðurnesja hækkaði verð hins vegar til aflnotenda í flestum tilvikum en í öllum tilvikum undir þróun verðlagsvísitölu. Það skiptir máli.
Ég ímynda mér að hv. þingmenn vilji ræða við mig staðhæfingar um það að hjá sumum hafi sú breyting sem varð 2003 leitt til þess að orkuverð hækkaði og það er rétt í sumum tilvikum, þar var um að ræða hjá þeim sem búa við það að hita híbýli sín með raforku. Sú raforka er niðurgreidd, bæði orkan sjálf og sömuleiðis dreifingarkostnaður. Ástæðan fyrir því að á því sem tímabili sem er liðið frá því að lögin tóku gildi hefur að minnsta kosti á köflum orðið ákveðið misvægi, þ.e. að niðurgreiðslan hefur minnkað minna en hækkunin hefur verið almennt sem leiðir til þess að þetta er sá hópur sem verðið hækkar mest hjá. Þetta hefur valdið ákveðinni misklíð og óánægju sem ég skil vel. En þetta er eitt af því sem erfitt er (Forseti hringir.) að ráða við nema þá að hv. Alþingi taki ákvörðun um að hækka þakið sem menn beita til þess að greiða (Forseti hringir.) niður kílóvattsstundirnar.