135. löggjafarþing — 68. fundur,  25. feb. 2008.

raforkumálefni.

311. mál
[16:34]
Hlusta

iðnaðarráðherra (Össur Skarphéðinsson) (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég verð nú bara að viðurkenna það að ég hef ekki svar á reiðum höndum við fyrri spurningu hv. þingmanns en hins vegar er svarið við síðari spurningunni já, það er rétt hjá hv. þingmanni. En ég skal reyna að afla upplýsinga um fyrri spurninguna.