135. löggjafarþing — 68. fundur,  25. feb. 2008.

raforkumálefni.

311. mál
[16:59]
Hlusta

Steingrímur J. Sigfússon (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég er einfaldlega þeirrar skoðunar og þykist geta fært fyrir því sæmileg rök að ef við hefðum ekki gert þau miklu skipulagsmistök í raforkumálum sem urðu þegar menn blönduðu saman framleiðslu til stóriðju og framleiðslu til almennra nota, ef það tiltölulega háa orkuverð sem almennir notendur hafa borgað áratugum saman á Íslandi hefði gengið til að borga niður virkjanirnar sem reistar voru í þeirra þágu, þá væru þær að mestu leyti skuldlausar í dag. Það vita allir að hagkvæm þægileg vatnsaflsvirkjun sem hefur verið greidd niður er einhver mesta gullkvörn sem til er í heiminum eða á að geta verið það, eins og margir bændur sem eiga vel heppnaðar heimarafstöðvar þekkja og búa við svo til ókeypis rafmagn nema þeir þurfa að kaupa nýjar legur á svona tíu ára fresti. Það á nefnilega að vera þannig að vel heppnuð vatnsaflsvirkjun, við getum tekið t.d. Sogsvirkjanirnar, á hreinlega að mala gull þegar búið er að borga stofnkostnaðinn niður.

Almennir notendur njóta þess því miður ekki vegna þess að raforkufyrirtækin hafa drekkhlaðið sig skuldum aftur og aftur og aftur í formi nýrra fjárfestinga í þágu stóriðjuframleiðslu, þannig er það bara, og þau miklu mistök eru að mínu mati aðalástæðan fyrir því að við erum ekki með mun lægra orkuverð eins og við ættum að gera verið.

Noregur og Danmörk og slík ríki hafa farið út í mikla skattlagningu. Þar er náttúrlega um blandaðan orkumarkað í samkeppni að ræða. Þeir eiga þann kost að selja rafmagnið út fyrir landsteinana niður á hinn stóra sameiginlega markað í Evrópu eins og við sjáum að þróunin hefur verið í Noregi þar sem menn hafa jafnvel verið að loka iðnfyrirtækjum til þess að geta losað raforkuna og selt hana á hærra verði inn á evrópska markaðinn.

Ég held að það sé ekki ástæða til að svo stöddu að minnsta kosti að fara í miklar umræður um þörfina á grænni gjaldtöku eða skattlagningu á raforkumarkað okkar. Hitt er spurningin hvernig við getum mögulega nýtt slík stýritæki til að útrýma kolefnisorkugjöfum og nota raforkuna sem víðast. Auðvitað er það blóðugt að notuð skuli vera svartolía og gas á mörgum stöðum á Íslandi í dag í iðnaði þar (Forseti hringir.) sem við gætum notað umhverfisvænna rafmagn.