135. löggjafarþing — 68. fundur,  25. feb. 2008.

raforkumálefni.

311. mál
[17:01]
Hlusta

Ólöf Nordal (S) (andsvar):

Frú forseti. Mér þætti gaman að vita hvaða stórvirkjanir hafa verið reistar hér fyrir almenna markaðinn. Ég trúi því að þær séu afar fáar, Sogsvirkjanir voru það til dæmis ekki. Hins vegar er alveg rétt að þessar virkjanir mala gull fyrir þjóðarbúið og það er vel og ég lít ekki svo á að sú atvinnuuppbygging sem þar hefur orðið hafi verið gerð til höfuðs almenningi nema síður sé. Ég held einmitt þvert á móti að þetta hafi skapað velsæld í landinu og ég held að okkur sé óhætt að muna það.

Tvö önnur atriði langar mig til að koma inn á í ræðu hv. þm. Steingríms J. Sigfússonar. Það er í fyrsta lagi það sem hann sagði um vindorku og kemur fram í skýrslunni, þ.e. að búið sé að ljúka rannsóknum á vindorku og það hafi ekki fengist fjárfestar til þess að halda þeim áfram. Nú er ég mjög eindregið þeirrar skoðunar að bæði eigum við að leita að nýjum orkugjöfum og einnig eru áhugaverðar þær umræður sem voru um orkubera, og þá er þar sérstaklega um vetni að ræða auðvitað. En það tekur náttúrlega óhemjulega mikið rafmagn og það þarf að taka einhvers staðar og það þarf væntanlega að nýta það rafmagn sem er verið að framleiða í það eða þá að virkja fyrir því sérstaklega. Við gætum þá skoðað það.

En það er alveg hræðileg sjónmengun af vindorkuverum. Ég held að við hljótum að vera sammála því og það hafa Danir til dæmis deilt verulega um hjá sér og farið með þessi vindorkuver langt út á haf. Ég held að við hljótum að þurfa að ræða það þá sérstaklega hvernig við ætlum að gera það. Ég vil líka benda á að hér var fyrirtæki starfandi fyrir nokkrum árum, Vindorka, sem hafði það sérstaklega að leiðarljósi að kanna möguleika á vindorku. Því miður var það svo dýrt á þeim tíma að ekki var hægt að halda því áfram. En bara til þess að það sé á hreinu þá eru vindorkuverin, eins góð og þau eru og hafa verið nýtt á Íslandi í langan tíma hjá bændum sérstaklega, auðvitað mjög mengandi að því leyti til að sjónmengunin er gríðarleg.

Eins langar mig að spyrja hv. þm. Steingrím J. Sigfússon hvort það sé rangur skilningur hjá mér að hann styddi að Búðarhálsvirkjun sem hann nefndi í sinni ræðu yrði byggð eins og hún lægi fyrir ef neðri hluta Þjórsár yrði sleppt. (Forseti hringir.) Var það rangur skilningur hjá mér?