raforkumálefni.
Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir þessa athugasemd. Það er einmitt umræða af þessu tagi sem maður er að kalla eftir að fari fram, þ.e. að við ræðum það hvernig við teljum þessari orku best fyrir komið, ekki síst hver sé framtíðarsýnin í þessum efnum, hver sé framtíðarsýnin varðandi notkun á þeirri raforku sem við erum svo rík af og er endurnýjanleg. Af því að hv. þingmaður nefndi það hér þá hefur hluti stóriðjunnar eða orkufreks iðnaðar vissulega verið mjög mikill alla tíð sem hlutfall af raforkunotkun okkar en hún hefur samt tekið mjög mikið stökk á undanförnum 15 árum, úr 50% frá 1996, eins og fram kemur í skýrslunni, upp í 77% jafnvel á næsta ári. Það er heilmikið stökk sem hlutur af okkar heildarraforkunotkun. Vísbendingar eru svo um að það gæti komið annað svona stökk, þ.e. að hlutfallið gæti orðið enn hærra. Það er við þann tímapunkt sem ég tel að okkur beri skylda til að stöðva og ræða það hvort þetta sé sú framtíðarsýn sem við viljum, hvert þetta stefni og hvort við viljum fara í þennan leiðangur með auðlindir okkar og rafmagn.
Í slíkri umræðu er auðvitað tekið tillit til allra þeirra atvinnuþátta sem hafa tekið þátt í að móta íslenskt samfélag og við byggjum framtíðarsýn á þeim sterka grunni sem lagður hefur verið með þeim fyrirtækjum sem eru hér í dag. Aðeins varðandi umræðuna um netþjónabúið. Mér fannst eins og hv. þingmaður væri að gefa í skyn að þau gæfu ekki jafnmörg störf og annar orkufrekur iðnaður. Það tel ég ekki rétt vegna þess að í kringum netþjónabú í Evrópu hafa byggst upp hátækniklasar sem hafa gefið mjög mörg spennandi störf og fjölbreytt þar sem þau hafa verið.