raforkumálefni.
Herra forseti. Ég vil taka fram að ég var alls ekki að gera því skóna að netþjónabú gæfu ekki mörg störf. Ég var eingöngu að benda á að það er pínulítið eðli þeirrar starfsemi sem kemur af raforkuframleiðslu að það er oft í framleiðslugreinum. Svo getum við talað um það hversu vítt við viljum skilgreina framleiðslugreinar.
Ég vil ítreka það að í því árferði sem nú er — og nú vil ég að það komi skýrt fram að ég er ekki á þeirri skoðun að við eigum þegar illa gengur alltaf að stökkva inn í sömu umræðuna, ég á alls ekki við það — skiptir máli að hafa í huga að þegar við horfum á Ísland í heild, og horfum á hvaðan tekjur okkar koma, er alveg ljóst að verulegar tekjur koma úr framleiðslugreinum. Þá á ég við matvælaframleiðslu, sjávarútveg og iðnaðarframleiðslu. Hér er um að ræða eina tegund iðnaðarframleiðslu, við erum auðvitað með smærri iðnað líka. En þegar við horfumst í augu við þrengri kosti í fjármálakerfinu er mjög áhugavert að sjá að menn eru farnir að tala meira um grunngreinarnar, grunngerð samfélagsins. Það er það sem skapar okkur tekjur og mun gera það áfram. Um leið og við tölum um framtíðina skulum við gera okkur grein fyrir því að við þurfum ákveðna framleiðsluþætti í landi til að tryggja hagsæld til lengri tíma.