raforkumálefni.
Herra forseti. Mér er kunnugt um — og ég átti alls ekki við að bein tenging væri á milli neðri hluta virkjunar í Þjórsá og Búðarháls. Það liggur hins vegar fyrir að Landsvirkjun hefur verið að ræða þessa framkvæmd núna undanfarið og jafnframt hefur Landsvirkjun lýst því yfir á fyrri stigum að ekki standi til að fara í Norðlingaölduveitu. Ég hefði því haldið að það væri alveg hægt að taka afstöðu til Búðarhálsvirkjunar eins og hún er núna og ekki með Norðlingaölduveitu. Þá er það spurningin: Er það sjónarmið Vinstri grænna að slík virkjun væri þá kostur sem hægt er að skoða?
Að lokum varðandi byggðalínuna. Ég held að það sé mjög varasamt að tala alltaf um hálendislínuna í þessu sambandi vegna þess að styrking flutningskerfisins eins og það er, er bara eitt mál. Hálendislína er annað mál og þar er náttúrlega svo margt sem vert er að skoða. Styrking flutningskerfisins með hálendislínu er ný framkvæmd, breytt framkvæmd. Það sem ég var sérstaklega að velta fyrir mér er hvort hægt væri að styrkja flutningskerfið eins og það er núna og hvaða skoðanir menn hafa á því. Jafnframt velti ég fyrir mér hvað mönnum finnst um að byggja hreinlega nýjar línur þar sem núverandi línur eru. Af því er í hugum margra auðvitað töluverð sjónmengun en þó verulegur ábati fyrir fólk sem býr á þeim stöðum sem um er að ræða og fyrir þá atvinnustarfsemi sem nú þegar er þar, t.d. á sviði sjávarútvegs.